Liposomal Vitamin D3 - 30 hylki
Fá tölvupóst þegar varan kemur aftur
Bætiefnin frá Cure Support hafa þá sérstöðu að þau eru framleidd með Liposomal tækni. Liposomal eru örlitlar kúlulaga loftbólur sem samanstanda af einu eða fleiri fosfólípíðum sem eru náttúruleg lípíð eða fita. Bætiefnin eru umlukin tvöfaldri himnu sem vernda og auka upptöku í meltingarvegi sem gerir það að verkum að bætiefnið virkar hraðar og betur ásamt því að líkaminn á auðveldara með að nýta næringarefnin. Tæknin ver einnig fyrir ensímum, magasýrum og öðru sem finnst í meltingarkerfinu. Cure Support hefur þróað einkaleyfisvarða aðferð sem kallast Aktin tækni. Sú aðferð er notuð til þess að útbúa hylki með Liposomal tækni. D3 vítamín er nauðsynlegt fyrir alla, alla daga – sérstaklega á Íslandi þar sem við fáum heldur litla sól. D- vítamín hefur mörgum mikilvægum hlutverkum að gegna í líkama okkar en það stuðlar m.a. að viðhaldi eðlilegra beina og tanna ásamt eðlilegri vöðvastarfsemi sem og eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins.
Tengdar vörur



