Liposomal Vitamin C - 30 hylki
-
C vítamín eykur frásog og upptöku járns í líkamanum
Fá tölvupóst þegar varan kemur aftur
Bætiefnin frá Cure Support hafa þá sérstöðu að þau eru framleidd með Liposomal tækni. Liposomal eru örlitlar kúlulaga loftbólur sem samanstanda af einu eða fleiri fosfólípíðum sem eru náttúruleg lípíð eða fita. Bætiefnin eru umlukin tvöfaldri himnu sem vernda og auka upptöku í meltingarvegi sem gerir það að verkum að bætiefnið virkar hraðar og betur ásamt því að líkaminn á auðveldara með að nýta næringarefnin. Tæknin ver einnig fyrir ensímum, magasýrum og öðru sem finnst í meltingarkerfinu. Cure Support hefur þróað einkaleyfisvarða aðferð sem kallast Aktin tækni. Sú aðferð er notuð til þess að útbúa hylki með Liposomal tækni. C vítamín er eitt nauðsynlegasta vítamín fyrir mannslíkamann en það er öflugt andoxunarefni sem verndar frumur gegn oxunarálagi og tekur þátt í ýmsum efnaskiptum í líkamanum. C vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfisins sem og dregur úr þreytu og lúa, ásamt því að draga úr áhrifum eiturefna og skaðlegra efna, svo sem kvikasilfur, kopar og blý. Að auki hefur C vítamín áhrif á myndun fjölda hormóna sem stjórna ferli blóðmyndunar ásamt því að taka þátt í að auka frásog járns sem berst inn í líkamann og vernda verkun annarra vítamína. C vítamín framleitt með Aktin (Liposomal) tækni er einstök leið til að fá inn ráðlagðan dagskammt af þessu mikilvæga vítamíni.
Tengdar vörur



