Bio Kult Migrea Góðgerlar
-
Stuðlar að heilbrigðri þarmaflóru
-
Hentar á meðgöngu og brjóstagjöf
-
Virkar vel með sýklalyfjum
Bio-Kult Migréa er háþróuð og fjölvirk góðgerlablanda sem inniheldur 14 tegundir frostþurrkaðra og sýruþolinna gerlastofna ásamt magnesíum og B6 vítamíni, en það tvennt stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfisins og dregur úr þreytu og lúa. Tengsl milli þarmaflóru og annarrar líkamsstarfsemi eru vel þekkt og er talið að léleg þarmaflóra geti m.a. haft áhrif á ýmsa kvilla, svo sem tengda höfði. Hentar barnshafandi konum og mjólkandi mæðrum. Inniheldur soya og mjólk í mjög litlu magni. Geymist við stofuhita á þurrum stað. Leitið ráðlegginga hjá lækni áður en fæðubótarefnið er gefið börnum undir 12 ára aldri. Bio-Kult góðgerla má taka á sama tíma og sýklalyf en mælt er með að Bio-Kult sé tekið 1-2 klst. eftir inntöku sýklalyfjanna fyrir bestan árangur. Mælt er með að taka Bio-Kult í að minnsta kosti tvær vikur eftir að notkun sýklalyfja er hætt.
12 ára og eldri: 1-2 töflur á dag, með mat.
Börn 4-11 ára: Leitið ráðlegginga hjá lækni áður en fæðubótarefnið er gefið börnum undir 12 ára aldri.
Lifandi gerlastofnar:
- Lactobacillus casei PXN® 37TM,
- Lactobacillus plantarum PXN® 47TM
- Lactobacillus rhamnosusPXN® 54TM
- Bacillus subtilis PXN® 21®
- Bifidobacterium bifidum PXN® 23TM
- Bifidobacterium breve PXN® 25TM
- Bifidobacterium longum PXN® 30TM
- Lactobacillus acidophilus PXN® 35TM
- Lactococcus lactis ssp. lactis PXN® 63TM
- Streptococcus thermophilus PXN® 66TM
- Bifidobacterium infantis PXN® 27TM
- Lactobacillus delbrueckii ssp. bulgaricus PXN® 39TM
- Lactobacillus helveticus PXN® 45TM
- Lactobacillus salivarius PXN® 57TM
Hvert hylki inniheldur:
- Magnesíum 90 mg (24% af ráðlögðum dagskammti)
- B6 vítamín 8 mg (571% af táðlögðum dagskammti)
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma. Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Tengdar vörur



