Fara á efnissvæði

Liposomal Q10 - 30 hylki

Framleiðandi: Liposomal Vörunúmer: 1100004
Verð 4.998 kr
Error
  • Öflugt andoxunarefni

Bætiefnin frá Cure Support hafa þá sérstöðu að þau eru framleidd með Liposomal tækni. Liposomal eru örlitlar kúlulaga loftbólur sem samanstanda af einu eða fleiri fosfólípíðum sem eru náttúruleg lípíð eða fita. Bætiefnin eru umlukin tvöfaldri himnu sem vernda og auka upptöku í meltingarvegi sem gerir það að verkum að bætiefnið virkar hraðar og betur ásamt því að líkaminn á auðveldara með að nýta næringarefnin. Tæknin ver einnig fyrir ensímum, magasýrum og öðru sem finnst í meltingarkerfinu. Cure Support hefur þróað einkaleyfisvarða aðferð sem kallast Aktin tækni. Sú aðferð er notuð til þess að útbúa hylki með Liposomal tækni. Coenzyme Q10 er mikilvægt efni sem hefur vakið áhuga vísindamanna við rannsóknir á hinum ýmsu kvillum, svo sem öldrun, íþróttaiðkun og heilsufarsvanda sem orsakast af skorti á efninu. Q10 er í hverri einustu frumu líkamans og gegnir mikilvægu hlutverki við að umbreyta þeirri næringu sem til frumunnar berst í orku. Q10 er nauðsynlegt til orkumyndunar í frumunni. Q10 er sérstaklega mikilvægt fyrir frumur sem nota mikið súrefni við orkumyndun og má þar einkanlega nefna frumur hjartans. Auk þess er Q10 öflugt andoxunarefni. Því miður minkkar hæfni lifrarinnar til að framleiða Q10 með aldrinum. Upp úr miðjum aldri er góður kostur að nota Q10 reglulega bæði til að viðhalda heilsu og þreki sem og styrkja viðnámsþrótt líkamans.

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu