Skilaréttur og vöruskil
Skilaréttur fer eftir reglum Velveru um endursendingar. Endursendingum skal skilað í gegnum endursendingakerfi Dropp www.dropp.is/voruskil.
Viðskiptavinir Velvera.is hafa rétt til þess að skila vörum gegn endurgreiðslu í 14 daga eftir kaup. Aðeins er hægt að skila vörum sem eru ónotaðar og í upprunalegum og óskemmdum umbúðum. Sé vara innsigluð þarf innsigli að vera órofið. Kvittun fyrir kaupum þarf að fylgja vöruskilum. Viðskiptavinur ber ábyrgð á að koma vörum sem skila á til Velveru í gegnum Dropp og skal greiða endursendingarkostnað nema um annað sé samið. Endursendingarkostnaður er samkvæmt verðskrá Dropp. Hafi kaupandi spurningar má senda póst á velvera@velvera.is