Skilmálar
1. Almennt
1.1. Skilmálar þessir gilda um öll kaup aðila á vörum sem eiga sér stað í gegnum vefverslunina Velvera á velvera.is (hér eftir „Velvera“ eða „félagið“). Eigandi Velveru er Artasan (kt. 620307-2380), Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. VSK númer 093807.
1.2.Velvera áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum einhliða og án fyrirvara. Breytingar á skilmálum munu ekki hafa áhrif á pöntun sem hefur þegar verið staðfest.
1.3. Viðskiptamaður er sá sem skráður er á reikning gefnum út af Velvera.is.
1.4. Notandi er aðili sem á í viðskiptum við Velvera.is sem innskráður notandi eða gestur.
1.5. Viðskiptamaður og/eða notandi staðfestir að hann hafi kynnt sér og samþykkt skilmála þessa með staðfestingu pöntunar í gegnum vefverslun Velvera.is.
1.6 Velvera ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða vegna notkunar þriðja aðila og notkunar / misnotkunar þeirra á Velvera.is.
1.7. Viðskiptamaður ber ábyrgð á að fara eftir gildandi lögum og reglum er varðar heimildir til innkaupa.
2. Verð og greiðslur
2.1. Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti, ýmist 11% eða 24% og birt með fyrirvara um innsláttarvillur.
2.2. Sundurliðun verðs sést í körfu áður en pöntun er staðfest.
2.3. Velvera áskilur sér rétt til þess að breyta og uppfæra verð á hverjum tíma.
2.4. Viðskiptamaður skal greiða fyrir pantanir með greiðslukorti eða öðrum greiðslulausnum sem í boði eru á hverjum tíma á Velvera.is. Vörur eru ekki afhentar fyrr en greiðsla hefur borist.
3. Bindandi samningur
3.1. Samningur telst vera kominn á og er hann bindandi um leið og viðskiptamaður sendir inn pöntun.
3.2. Hafi verið gengið frá pöntun en vara ekki verið afhent, og viðskiptamaður vill breyta pöntun, skal viðskiptamaður að senda tölvupóst á netfangið velvera@velvera.is eins fljótt og kostur er og upplýsa um óskir um breytingar. Velvera ábyrgist ekki að hægt sé að verða við óskum um breytingar.
3.3. Skilaréttur fer eftir reglum Velveru um endursendingar. Endursendingum skal skilað í gegnum endursendingakerfi Dropp á www.dropp.is/voruskil.
Viðskiptamaður hefur rétt til þess að skila vörum gegn endurgreiðslu í 14 daga eftir kaup. Aðeins er hægt að skila vörum sem eru ónotaðar og í upprunalegum og óskemmdum umbúðum. Sé vara innsigluð þar innsigli að vera órofið. Kvittun fyrir kaupum þarf að fylgja vöruskilum. Kaupandi ber ábyrgð á að koma vörum sem skila á til Velvera í gegnum Dropp og skal greiða endursendingarkostnað. Endursendingarkostnaður er samkvæmt verðskrá Dropp. Hafi kaupandi spurningar má senda póst á velvera@velvera.is eða á netspjalli á velvera.is.
3.4. Velvera áskilur sér rétt til þess að afgreiða ekki framlagðar pantanir. Í þeim tilvikum skal Velvera tilkynna viðskiptamanni um slíkt og endurgreiða honum kaupverðið, hafi viðskiptamaður lagt fram greiðslu, eigi síðar en 30 dögum eftir að viðskiptamaður hefur lagt fram pöntun.
4. Afhending vöru
4.1. Vara telst afhent þegar hún er komin á umsaminn afhendingarstað.
4.2. Afhendingartími vöru fer eftir samkomulagi viðskiptamanns um afhendingarleið sem valin hefur verið í kaupferli. Velvera ber ekki ábyrgð fari afhendingartími fram yfir áætlaðan uppgefin afhendingartíma.
4.3. Sendingargjöld eru gjaldfærð í samræmi við verðskrá Velvera.is og Dropp.
4.4. Allar afhendingar eru í samstarfi við flutningsaðilann Dropp.
4.5. Velvera afhendir vörur eftir þeirri afhendingaleið sem valin er í pöntun í vefverslun á velvera.is.
4.6. Velvera skal svo fljótt sem auðið er láta viðskiptamann vita, ef fyrirséð er að dráttur verði á umsaminni afhendingu.
4.7. Velvera ber ekki ábyrgð á seinkun afhendingar, sem kann að verða vegna aðstæðna sem varða viðskiptamann.
4.8. Hamli óviðráðanlegar orsakir (force majeure) afhendingu, er Velveru hvorki skylt að standa við umsaminn afhendingartíma, né ber Velvera bótaábyrgð þótt afhending dragist eða bregðist.
5. Ástand vöru
5.1. Velvera ábyrgist að vörur séu afhentar í því ástandi sem góð venja stendur til.
5.2. Áhættan af hinu selda flyst yfir á viðskiptamann frá þeirri stundu er hlutur var afhentur flutningsmanni.
5.3. Beri svo við að vara sé afhent gölluð ber viðskiptamanni að tilkynna Velveru um að hann muni bera gallann fyrir sig innan 5 virkra daga frá afhendingu. Að þeim tíma loknum glatar viðskiptamaður réttinum til að grípa til vanefndaúrræða.
6. Meðferð persónuupplýsinga og póstlisti
6.1. Vefverslun Velveru notar vafrakökur til að tryggja sem besta upplifun fyrir notendur. Greiningarvafrakökur eru notaðar til að skoða hvernig viðskiptavinir Velvera.is nota vefverslunina og eru þau gögn notuð til að bæta vefverslunina og upplifun notenda. Vafrakökur geta einnig verið notaðar í markaðslegum tilgangi.
6.2. Velvera hefur einsett sér að tryggja áreiðanleika, trúnað og öryggi persónuupplýsinga sem unnið er með innan félagsins. Persónuverndarstefnu Veritas móðurfélags Velvera.is má nálgast hér.
6.3. Óski viðskiptamaður eftir að fá tilboð eða fréttabréf frá Velvera.is ekki send getur viðkomandi afskráð netfang sitt af póstlista með því að hafa samband á velvera@velvera.is eða með því að afskrá sig í gegnum hlekk í tölvupósti frá velvera.is.
7. Lög og varnarþing
7.1. Um skilmála þessa og viðskipti viðskiptamanna og Velvera.is gilda íslensk lög
7.2. Komi upp ágreiningur á milli Velvera.is og kaupanda, skulu aðilar leita leiða til að leysa þann ágreining með samkomulagi.
7.3. Deilur sem upp kunna að koma um efndir, framkvæmd eða túlkun skilmálanna, og/eða atvik sem skilmálarnir taka til, og aðilum tekst ekki að leysa sín á milli, skal útkljá fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.