Velkomin á Velvera.is
Velvera er vefverslun sem leggur áherslu á heilsu og vellíðan! Við hjá Velveru erum stolt af því að bjóða upp á úrval af hágæðavörum sem styðja við og bæta heilsu þína og fjölskyldu þinnar. Við viljum þér vel.

Hjartað
Í hjarta Velveru starfar hópur ástríðufullra sérfræðinga sem leggja sig fram við að setja saman fjölbreytt úrval af vörum sem henta fyrir allra flest. Hvort sem þú ert að leita að vítamínum og bætiefnum, tannvörum, eða vörum fyrir foreldra, verðandi foreldra og börn, þá finnur þú það á velvera.is. Bjóðum einnig frábært úrval af húð-, hár-, hreinlætis- og matvörum.

Vörurnar
Vöruframboð okkar er í stanslausri þróun og við höldum áfram að bæta við nýjum og spennandi vörum til að mæta þörfum viðskiptavina okkar. Við leggjum okkur fram um að vera leiðandi á sviði heilsueflingar og skrifum reglulega fræðslugreinar sem birtast á velvera.is/fraedsla. Þar getur þú lesið greinar um almenna heilsu, um vörurnar okkar og vörumerki og reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.
Við viljum þér vel!
Við hjá Velveru viljum ekki bara selja heilsuvörur, heldur líka veita þér upplýsingar og innblástur til að lifa heilsusamlegra lífi. Kíktu í heimsókn á Velvera.is og sjáðu hvað við höfum upp á að bjóða. Með okkur við hlið geturðu verið viss um að þú sért að fá hágæðavörur fyrir þína heilsu.