Perspi Guard svitastoppari 50 ml
Perspi Guard er líkamssprey sem vinnur bug á erfiðustu tilfellum af óþægilegri líkamslykt og er hannaður til að koma í veg fyrir svita og svitalykt hjá einstaklingum með ofvirka svitakirtla (Hyper hydrosis). Helsti kostur þess er að einungis þarf að nota spreyið tvisvar sinnum í viku til að ná tilætluðum árangri. Í mjög erfiðum tilfellum gæti þó reynst þörf á meiri notkun.
Berist á hreina og þurra húð einu sinni til tvisvar í viku. Tvö skipti á viku eiga að nægja til að viðhalda svita- og lyktarlausu ástandi. Til að ná bestum árangri skal úða á meðferðarsvæðið að kvöldi til áður en farið er að sofa. Þvoið svæðið sem bera skal á og þurrkið vel. Úðið í 2-3 skipti á meðferðarsvæðið og látið þorna. Þvoið ykkur eins og þið eruð vön daginn eftir, hvort sem farið er í sturtu eða þrifið með öðrum hætti. Má nota undir hendur, á hendur, á kálfa og á fætur. Notið ekki annan svitalyktareyði á sama tíma þar sem það gæti truflað meðferðina. Ef nauðsyn ber til, er mælt með því að nota lyktargefandi efni á aðra líkamshluta en þá sem úðaðir eru með Perspi Guard.
Tengdar vörur



