Effitan flugnafæla 100 ml
-
Flugnafæla sem inniheldur einungis náttúruleg innihaldsefni
Náttúruleg innihaldsefni sem virka. Effitan inniheldur ekki DEET sem er í mörgum flugnafælum og skordýraeitri. Virku innihaldsefnin í Effitan eru m.a. kókosolía, Eucalyptus Citriodora (sítrónu júkalyptus) og citronella sem er ilmkjarnaolía og vel þekkt sem flugnafæla í kremum, úðum og kertum. Virkni Effitan er klínískt rannsökuð, bæði hjá Swiss Tropical Institute í Basel og Dr. Dautel Institut í Berlín Fyrir alla fjölskylduna Þar sem Effitan er náttúruleg skordýrafæla hentar hún fyrir alla fjölskylduna. Óhætt er að nota á meðgöngu og á börn frá 3 mánaða en berists á börn undir 3 ára aldri. Einungis þarf að varast að bera efnið ekki þar sem hægt er að setja það í augu og munn. Rannsóknir sýna að Effitan verndar í allt að 8 klukkustundir. Frí á suðrænni sólarströnd Við könnumst flest við hversu hvimleitt það getur verið að lenda í svöngum moskítóflugum í sólarfríinu. Að vera útbitin og að tapa sér í kláða er ekki góð skemmtun og getur í sumum tilfellum skemmt fríið. Effitan má nota að vild og ekki er verra ef við tökum nóg af B vítamíni nn líka en pöddurnar eru margar hverjar viðkvæmar fyrir lyktinni sem þetta vítamín gefur frá sér. Það er um að gera að taka það inn daglega og leyfa lyktinni af töflunum að dreifast um innandyra. Stangveiði, golf, göngur og garðyrkja Yfir sumartímann má segja að blíðunni fylgir fluga. Það er því þjóðráð að eiga Effitan í golftöskunni, bakpokanum og hvað þá í veiðitöskunni en mývargurinn getur hreinlega eyðilagt friðsæla veiðiferð. Það er líka þjóðráð að nota það þegar taka á til hendinni í garðinum.
Notkun: Efnið er ætlað til notkunar á öllum svæðum.
Tengdar vörur



• Dregur úr kláða og einkennum af flugnabitum.
• Kæ...