Hvað gerir rauðrófur svona sérstakar?
Rauðrófur eru af sömu plöntuætt og spínat og tilheyra tegundinni Beta vulgaris. Rauðrófur eru sneisafullar af næringar- og plöntuefnum og innihalda m.a. ríkulegt magn af járni, A, B6 og C vítamíni, fólínsýru, magnesíum og kalíum. Þar að auki innihalda þær góð flókin kolvetni, trefjar og öflug andoxunarefni sem verja frumur líkamans fyrir skemmdum.
Nítröt - lykillinn að mörgum ávinningi rauðrófunnar!
Eitt af því sem gerir rauðrófur sérstaklega áhugaverðar er hátt innihald þeirra af náttúrulegum nítrötum, sem er sannkölluð ofurfæða. Í líkamanum fara nítröt í gegnum efnaskiptaferli þar sem þau breytast fyrst í nítrít og síðan í nituroxíð, efni sem gegnir lykilhlutverki í líkamanum.
Rauðrófur hjálpa til við að vernda frumur, prótín og ensím frá álagi í umhverfinu ásamt því að vernda innri líffæri, auka afköst, auka súrefnisupptöku, bæta blóðflæði sem og fyrirbyggja hina ýmsu kvilla. Þess vegna hafa rauðrófur orðið afar vinsælar meðal íþróttafólks, en ávinningurinn nær langt út fyrir æfingasalið. Betra blóðflæði og súrefnisnýting getur haft jákvæð áhrif á daglega orku, einbeitingu og almenna líðan.
Rauðrófan – litla rótin með stóra heilsuávinninginn
Hvernig er best að neyta rauðrófa?
Rauðrófur má neyta á ýmsan hátt, svo sem hráar, niðursoðnar eða bakaðar en það eru til ýmsar leiðir til að bæta þessari ofurfæðu í daglegu rútínuna. Rauðrófur eru þó ansi bragðmiklar og eru því alls ekki allir hrifnir af sterka og mikla bragðinu af rauðrófunni sjálfri eða safanum. Rauðrófan er einnig þekkt fyrir fallega litinn sinn sem kemur frá litarefninu betalín en það á það þó til að lita allt sem það kemst í tæri við sem erfitt getur reynst að þrífa.
Rauðrófur eru heldur betur allra meina bót og eitthvað sem við mælum að sem flest bæta í sitt mataræði.
2 hylki á dag samsvara 9.240 mg af þurrkaðri rauðrófu, sem er sambærilegt við að borða eina meðalstóra ferska rauðrófu
Villt þú fá þessa ofurfæðu í þína rútínu en þolir illa bragðið eða litinn?
Þá er rauðrófuduft í hylkjum eitthvað fyrir þig!
Hylkin frá Natures Aid eru sérlega góður kostur fyrir þau sem ekki kjósa rauðrófuna sjálfa. Auðvelt er að opna hylkin og bæta duftinu út í til dæmis þeytinga eða grauta.
Magn rauðrófudufts í dagskammti frá Nature Aid er hærra en algengt er í rauðrófubætiefnum. Eitt hylki jafngildir 4.620 mg af þurrkaðri rauðrófu og mælt er með að innbyrða 2 hylki á dag með mat, sem samsvarar 9.240 mg af þurrkaðri rauðrófu á dag – hátt magn miðað við algenga skammta í rauðrófubætiefnum og sambærilegt við um það bil eina meðalstóra ferska rauðrófu á dag.
Rauðrófu hylkin frá Natures Aid eru 100% náttúruleg og án allra aukefna.