Fara á efnissvæði

Svefn er undirstaða heilsu, jafnvægis og vellíðanar

Vissir þú að allt að 40% fullorðinna eigi við svefnvandamál að stríða og að langvarandi svefnleysi getur haft áhrif á hormón sem stýra hungri og seddu?
I Deeprest Gettyimages 1745865419

Svefn er ein af fjórum grunnstoðum heilsunnar ásamt næringu, hreyfingu og andlegu jafnvægi. Þegar við sofum fá bæði líkami og hugur tækifæri til að endurnærast, hormónastarfsemi nær jafnvægi og ónæmiskerfið styrkist. Góður nætursvefn er því lykillinn að betri einbeitingu, stöðugri líðan og aukinni orku yfir daginn.

Þegar svefn bregst geta afleiðingar verið margvíslegar. Langvarandi svefnleysi getur m.a. haft áhrif á hormón sem stýra hungri og seddu sem fær okkur til að sækja meira í sykur ásamt því að ónæmiskerfi okkar fer að bælast sem hefur áhrif á heilsu okkar og líðan almennt. Mörg okkar finna fyrir að daglegt amstur verður þyngra, þreyta meiri og jafnvægið minna en því skiptir máli að huga markvisst að svefni, bæði með lífsstíl og góðum stuðningi.

Grunnurinn - rútína, umhverfi og slökun
Margt er hægt að gera til að vinna bug á svefnleysi og stuðla að betri svefngæðum en eitt það allra mikilvægasta er að hafa góða reglu á svefntímanum og rútínu í kringum nætursvefn. Mikilvægt er að lágmarka skjánotkun í svefnherberginu sem á að vera myrkvað og hljóðlátt ásamt því að neyta ekki koffíns eftir klukkan 14:00 á daginn sem og stunda reglulega hreyfingu. Fyrir mörg okkar reynast náttúruleg bætiefni vera dýrmæt viðbót, sérstaklega þegar streita, álag eða óreglulegur lífsstíll hefur áhrif á svefninn. 

Hefur þú prófað náttúruleg bætiefni fyrir bætt svefngæði?
Við ætlum að taka hér saman nokkrar vörur sem hafa það að markmiði að bæta svefngæði okkar en vörurnar leggja áherslu á að veita líkama og huga þá hvíld sem þarf til að endurnærast og hvílast. Hvort sem þú glímir við svefnörðuleika af andlegum eða líkamlegum ástæðum, gæti ein af þessum formúlum verið skref í átt að rólegri nótt.

 

2 (2)

Melissa Dream - ró fyrir hugann og náttúruleg svefngæði
Melissa Dream formúlan er hönnuð til þess að veita huganum ró og stuðla að betri svefngæðum svo að við vöknum endurnærð daginn eftir. Melissa Dream fæst í tveimur mismunandi vörum.

Melissa Dream inniheldur sítrónumelissu sem hefur verið notuð í aldaraðir fyrir róandi áhrif, kamillu, grænt te með L-theaníni, B vítamín (B1, B2, B6 og B12) og magnesíum. B vítamín og magnesíum stuðla að eðlilegri starfsemi taugakerfisins sem og eðlilegri sálfræðilegri starfsemi sem hentar vel fyrir þau sem eiga erfitt með að slaka á fyrir svefn eða finna fyrir kvöldstreitu.

Melissa Dream + Melatónín - þegar líkamsklukkan er úr takti
Þessi einstaka blanda er sérstaklega hönnuð fyrir þau sem eiga erfitt með að sofna, m.a. vegna ferðalaga, vinnutíma, breyttrar dægursveiflu eða hvað eina sem hefur áhrif. Formúlan inniheldur sömu öflugu jurtaefni og Melissa Dream, en með 1 mg viðbættu melatónín í skammti.

Melatónín er hormón sem líkaminn framleiðir sjálfur og hjálpar til við að stilla innri klukkuna okkar, hvenær við verðum syfjuð og hvenær við erum vakandi. Með lágum og hóflegum skammti er hægt að styðja við náttúruleg svefngæði. 

1 (2)

Quality Sleep - sérhæfð svefnlína með valeríurót
Quality Sleep línan er byggð á valeríurót ásamt öflugum jurtum en línan skiptist í þrjár sérsniðnar blöndur sem mæta mismunandi svefnvandamálum.

  • Quality Sleep & Deep Rest - fyrir þau sem eiga erfitt með að sofna eða vakna oft yfir nóttina. Áhersla er lögð á djúpan og samfelldan svefn.
  • Quality Sleep & Nerve Rest - hentar sérstaklega vel þegar streita eða andlegt álag truflar svefninn.
  • Quality Sleep & Muscle Rest - fyrir þau sem finna fyrir vöðvaspennu, stirðleika eða líkamlegri þreytu á kvöldin.

Quality Sleep blöndurnar innihalda valeríurót en hvað er það?
Valeríurót hefur lengi átt fastan sess í evrópskum jurtalækningum sem er þekkt fyrir róandi eiginleika og stuðning við náttúrulega slökun. Jurtin hefur verið vinsæl í svefnblöndum um allan heim og er notuð til að hjálpa líkama og huga að slaka á, án þess að hafa sljóvgandi áhrif.

En hvaða vara hentar þér best?
Melissa Dream - Fyrir náttúrulega ró, slökun og bætt svefngæði, án melatóníns.
Melissa Dream + Melatónín - Fyrir þau sem eiga erfitt með að sofna vegna raskaðrar dægursveiflu, ferðalaga eða annarra orsaka.
Quality Sleep línan - Fyrir sértækari þarfir, svo sem til að ná betri djúpsvefni, huga að taugakerfinu eða fyrir vöðvaslökun.

Við skulum alltaf muna að gera okkar besta þegar kemur að svefninum þar sem svefn er grundvöllur líkamlegrar og andlegrar heilsu. Stuðlum að góðum svefni sem er grunnurinn að betra lífi.

Gangi þér vel!

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu