Fara á efnissvæði

Nærð húð = ljómandi húð

Sumarið er tími útiveru, en líka tími þar sem húðin okkar verður fyrir meiri útsetningu fyrir sólargeislum og hitabreytingum. Það getur haft áhrif á rakabúskap húðarinnar sem gerir góða húðumhirðu mikilvægari en nokkru sinni fyrr. Til að húðin líti fersk, mjúk og ljómandi út yfir sumarið skiptir máli að einfalda húðumhirðurútínuna án þess að fórna gæðum. Lykilorðið? Raki og næring.
136Aeba2e01d2d45112b0fc65b278e3b

Af hverju skiptir raki svona miklu máli?

Einn af algjörum lykilþáttum sumarhúðarinnar er raki. Þegar húðin fær nægan raka lítur hún ferskari, jafnari og ljómandi út. Skortur á raka getur aftur á móti gert húðina þreytulega, dregið fram ójöfnur og valdið spennu. Þess vegna er mikilvægt að velja vörur sem styðja við náttúrulegt jafnvægi húðarinnar og hjálpa henni að halda raka yfir daginn.

Af hverju húðin elskar olíu

Þó sumum finnist hugmyndin um að bera olíu á húðina letjandi, þá er sannleikurinn sá að húðin okkar elskar olíur, og það er góð ástæða fyrir því. Olíur eru í raun mjög líkar þeim náttúrulegu fituefnum sem húðin framleiðir sjálf til að halda sér mjúkri, varinni og í jafnvægi.

Í húðinni er svokallaður verndarlagshjúpur, sem hjálpar til við að halda raka inni og verja hana gegn utanaðkomandi álagi eins og veðri, mengun og sól. Þegar þessi vernd veikist, til dæmis yfir sumarið vegna meiri útsetningar getur húðin orðið þurr eða jafnvel viðkvæmari en vanalega. Þar koma olíur sterkar inn.

 

9B94a87f296b2bae7e71b22c6d9b86ae

Sumarleg viðbót við húðumhirðuna

Bio‑Oil er margverðlaunuð húðolía sem margir þekkja og treysta fyrir létta áferð og fjölbreytta notkun. Húðolían nýtur mikilla vinsælda og er oft notuð til að draga úr útliti öra, húðslita og ójafns húðlitar.

Hins vegar hefur Bio‑Oil mun meira upp á að bjóða og er sérléga hentug yfir sumartímann þar sem að hún inniheldur vítamín sem hjálpa húðinni að halda jafnvægi þegar hún verður fyrir álagi.

Lengri sólbrúnka: Ef þú vilt að sólbrúnkan endist lengur þá er lykilatriði að halda raka í húðinni. Bio‑Oil virkar sem öflugt rakakrem sem læsir raka inni í húðinni og getur einnig komið í veg fyrir að hún flagni eftir bruna. 

Snyrtilegri fætur og hælar: Á sumrin þegar gengið er mikið í opnum skóm eða sandölum eiga hælarnir til að þorna og jafnvel springa. Nuddaðu Bio-Oil á hæla og naglabönd á hverju kvöldi. Olían mýkir harða húð og gerir fæturna tilbúna í sumarskóna

Sumarljómi í andlitið: Hægt er að nota olíuna til að fá náttúrulegan ljóma á húðina. Blandaðu 1 - 2 dropum af Bio-Oil saman við farða eða dagkrem til að gefa andlitinu ferskt útlit.

Bio Oil Specialist Skincare Oil 200Ml 2 30484402 Eafe 4426 Ba72 E198d010a589 576X576

Vítamín sem styðja við heilbrigða húð

Bio‑Oil inniheldur meðal annars E‑vítamín, sem er vel þekkt í snyrtivörum fyrir að styðja við heilbrigða húð og hjálpa henni að viðhalda góðu ástandi. Yfir sumartímann þegar húðin verður fyrir auknu álagi er sérstaklega gott að nota vörur sem leggja áherslu á næringu og umhirðu.

Ein af ástæðunum fyrir því að Bio‑Oil hefur orðið svo vinsæl er samsetningin en hún byggir á nokkrum lykilinnihaldsefnum sem vinna saman að því að næra húðina og hjálpa henni að halda raka og jafnvægi.

A- vítamín

  • Stuðlar að heilbrigðari húð, örvar frumuendurnýjun og vinnur gegn öldrun, hrukkum og bólum.

E- vítamín

  • Verndar húðina gegn skaðlegum umhverfisáhrifum og veitir mjög mikinn raka sem er einstaklega gott þegar húðin verður fyrir álagi eins og mikilli sól eða þurrki. 

Mildar jurtaolíur

  • Morgunfrú, Kamilla, Lavender og Rósmarín jurtaolíur sem vinna vel saman til að róa og næra húðina.

PurCellin Oil™

  • Byltingarkennt innihaldsefni sem gerir olíuna léttari þannig að hún smýgur hraðar inn í húðina og það sem aðgreinir Bio-Oil frá öðrum húðolíum.

Olía á sumrin? Já, algjörlega

Sumir halda að olíur séu bara fyrir kaldari mánuði en léttar húðolíur henta einstaklega vel yfir sumarið. Þær dragast hratt inn í húðina, líma sig ekki ofan á hana og eru fullkomnar þegar húðin þarf næringu.

Mikilvægt er að nota ávalt sólarvörn með Bio-Oil þar sem Bio-Oil inniheldur A-vítamín, sem getur gert húðina viðkvæmari fyrir sólinni. Ef þú notar olíuna á daginn skaltu alltaf setja sólarvörn yfir hana - best er að leyfa olíunni að sogast alveg inn í húðina áður en sólarvörnin er borin á.

Upplifðu náttúrulegan ljóma með Bio-Oil í allt sumar ☀️

Lykillinn að ljómandi sumarhúð

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu