Fara á efnissvæði

Jafnvægi í meltingu og blóðsykri er lykillinn að betri líðan

Meltingin hefur meiri áhrif á líðan en mörg okkar gera sér grein fyrir. Uppþemba, vindgangur og óþægindi í meltingu eftir máltíðir eru algeng einkenni sem geta bent til þess að eitthvað sé úr jafnvægi. Ástæða þess að tiltekin einkenni geri vart við sig getur verið vegna þess að við erum með of lítið magn magasýra en magasýrur gegna mikilvægu hlutverki og eru ýmist nauðsynlegar til að brjóta niður fæðu og styðja við upptöku næringarefna.
I Applecidergummies+Applecidermega

Eplaedik hefur lengi notið vinsælda og verið hluti af daglegri rútínu hjá mörgum en það er ekki að ástæðulausu þar sem eplaedikið er sérstaklega þekkt fyrir heilsueflandi eiginleika. Regluleg neysla eplaediks hefur meðal annars þann kost að örva framleiðslu magasýra og stuðla þannig að betra jafnvægi í meltingu.

Áhrif eplaediks á blóðsykur, sætindalöngun og þyngdarstjórnun

Eplaedik hefur einnig verið rannsakað í tengslum við blóðsykur en niðurstöður benda til þess að það geti hjálpað til við að styðja við eðlilegt blóðsykursjafnvægi, sérstaklega þegar það er notað í tengslum við máltíðir. Fyrir mörg okkar getur stöðugt blóðsykursjafnvægi hjálpað til við að draga úr sveiflum yfir daginn og jafnvel haft þannig áhrif á sætindalöngun.

Eplaedik getur að auki verið hluti af heildstæðri nálgun þegar markmiðið er að styðja við heilbrigðar venjur og þyngdarstjórnun. Mikilvægt er þó að hafa í huga að engin ein lausn stendur ein og sér, jafnvægi í mataræði og lífsstíl skiptir alltaf mestu máli.

Mörgum líkar ekki við bragðið af eplaedikinu og jafnvel sleppa því af alfarið en þá er eplaedikið frá New Nordic afar góður kostur, sem fæst bæði í töflu- og hlaupformi.

Auk 1000 mg. af eplaediki innihalda töflurnar meðal annars:

  • Króm sem stuðlar að eðlilegu viðhaldi blóðsykurs
  • Kólín sem styður við eðlilega lifrarstarfsemi

Eplaedikshlaupin eru afar hentug og bragðgóð og innihalda 400 mg. af eplaediki í hverjum skammti ásamt því að þau eru bæði sykur- og glútenlaus. Ef þú finnur reglulega fyrir meltingaróþægindum eða sykurlöngun, eða vilt styðja betur við jafnvægi í líkamanum, gæti verið þess virði að prófa að bæta eplaediki inn í daglega rútínu.

Hvers vegna að velja eplaedik í formi bætiefna?

  1. Auðvelt að grípa í á ferðinni
  2. Ekkert súrt bragð
  3. Þarf ekki að blanda út í vatn
  4. Einfalt í daglega rútínu
  5. Góður kostur fyrir þau sem ekki vilja eða eiga erfitt með að drekka hreint eplaedik
IG 12 06 19 063 (1) (1)
0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu