Fara á efnissvæði

Hvað ef þú gætir tekið súrefnið með þér?

Við hugsum sjaldan um súrefni. Við hugsum um vítamín, prótein, svefn, hreyfingu og hollt mataræði en það er eitt sem líkaminn getur ekki verið án og það er súrefni. Án þess gæti líkaminn ekki framleitt þá orku sem frumurnar þurfa til eðlilegrar starfsemi. Súrefni gegnir því mikilvægu hlutverki í daglegri starfsemi líkamans þó við leiðum sjaldan hugann að því.
Eldri Markhopur

Súrefni og orkuframleiðsla

Í hverri frumu líkamans eru hvatberar sem oft eru kallaðir orkustöðvar frumunnar. Þar er súrefni notað ásamt næringarefnum úr fæðunni til að framleiða orkuna sem líkaminn nýtir allan sólarhringinn. Þetta er eitt af grundvallarferlum líkamans.

Þó svo að við öndum sjálfkrafa þarf súrefnið að fara ákveðna leið frá lungunum, út í blóðrásina og þaðan til frumna líkamans þar sem það tekur þátt í orkuframleiðslu. Þessi samvinna öndunar, blóðrásar og frumna er forsenda eðlilegrar starfsemi líkamans.

Við tökum öndun sem sjálfsögðum hlut

Flest okkar hugsa lítið um öndun í daglegu lífi. Hún fylgir okkur allan sólarhringinn og við öndum þúsundir andardrátta á hverjum degi án þess að hugsa út í það.

Við ákveðnar aðstæður, til dæmis við mikla líkamlega áreynslu eða þegar dvalið er í mikilli hæð þar sem minna súrefni er í andrúmsloftinu, verður þó auðveldara að átta sig á því hversu mikilvægu hlutverki súrefni gegnir.

Kannski er það einmitt ástæðan fyrir því að nýjar lausnir sem tengjast súrefni hafa vakið athygli á undanförnum árum og orðið til þess að fleiri velta fyrir sér mikilvægi þess í daglegu lífi. 

Nýjung sem vekur forvitni

Á undanförnum árum hafa komið fram vörur sem gera hreint súrefni aðgengilegt í handhægum umbúðum. Ein þeirra er Boost Oxygen sem inniheldur 95% hreint súrefni í þjöppuðu formi. Til samanburðar inniheldur andrúmsloftið um 21% súrefni.

Hugmyndin að vörunni er að bjóða upp á hreint súrefni í hentugum umbúðum sem auðvelt er að hafa með sér. Boost Oxygen er ætlað fullorðnum og er markaðssett sem lífsstílsvara. Varan er hvorki lyf né lækningatæki og er ekki ætluð til að greina, meðhöndla, lækna eða fyrirbyggja sjúkdóma.

Untitled Design

Ný nálgun

Áhugi á nýjum vörum og lausnum sem tengjast daglegum lífsstíl heldur áfram að þróast og Boost Oxygen er dæmi um slíka nýjung. Varan er hönnuð til að vera einföld í notkun og auðveld að hafa með sér við ýmsar aðstæður, svo sem á ferðalögum eða við útivist.

Við gerum þetta um 20.000 sinnum á dag

Við hugsum sjaldan um súrefni fyrr en eitthvað breytist þó svo það sé ómissandi þáttur í þeirri starfsemi sem heldur líkamanum gangandi allan sólarhringinn. Boost Oxygen er dæmi um nýja vöru sem hefur vakið forvitni fyrir þau sem hafa áhuga á nýjungum á sviði lífsstíls og útivistar. Um leið minnir hún okkur á eitt af grundvallarferlum líkamans sem við tökum oft sem sjálfsögðum hlut - að anda. 

155403-Pocket.png Aukin orka Boost Oxygen Natural 3L Fyrir ferðalög, útivist og virkan lífsstíl
Vara til á lager
Verð 1.898 kr
Error
155405-Medium.png Aukin orka Boost Oxygen Natural 5L Fyrir ferðalög, útivist og virkan lífsstíl
Vara til á lager
Verð 2.498 kr
Error
155407-Large.png Aukin orka Boost Oxygen Natural 10L Fyrir ferðalög, útivist og virkan lífsstíl
Vara til á lager
Verð 3.698 kr
Error
0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu