Fara á efnissvæði

Ef þú þarft að fara oftar en 2 sinnum á klósettið á nóttunni, þá gæti þetta hjálpað

Að vakna ítrekað á nóttunni til að fara á klósettið er algengt vandamál hjá körlum, sérstaklega þegar þeir eldast. Þó að þetta geti virst saklaust til að byrja með, getur það haft veruleg áhrif á svefn, líðan og daglega orku.
5B83bf 670Fa709cc7d4a1e83367b59c793dc29~Mv2

Ef þú upplifir næturþvaglát oftar en tvisvar sinnum á nóttu, slappri bunu eða brýnni þörf til að komast á klósettið, gæti blöðruhálskirtillinn verið að láta á sér kræla - sérstaklega ef um stækkun á blöðruhálskirtli (BPH) er að ræða.

Ein lausn sem margir karlar hafa leitað í er Brizo sem er náttúrulegt fæðubótarefni úr gerjuðu soja, ætlað að draga úr einkennum sem tengjast stækkuðum blöðruhálskirtli og óþægindum í þvagrás.

Hvað er Brizo?

Brizo er fæðubótarefni sérhannað fyrir karla sem upplifa einkenni vegna stækkunar á blöðruhálskirtli. Það inniheldur einkaleyfisvarið efni, SC012, sem er unnið úr gerjuðu, óerfðabreyttu soja. Þessi framleiðsluaðferð eykur aðgengi líkamans að virka efninu og stuðlar að bættri virkni.

Brizo F Vewlveu

Hver eru helstu einkennin sem Brizo getur hjálpað við?

Stækkaður blöðruhálskirtill getur þrengt að þvagrás og valdið ýmsum óþægindum. Algeng einkenni eru meðal annars:

  • Slöpp eða slitrótt þvagbuna
  • Þörf á að fara oft á klósettið, sérstaklega á nóttunni
  • Skyndileg þvaglátaþörf
  • Erfitt að hefja þvaglát
  • Þvagleki eða erfiðleikar við að stöðva þvaglát
  • Sviði eða sársauki við þvaglát


Þessi einkenni geta verið bæði truflandi og streituvaldandi, og brjóta upp svefn með tilheyrandi þreytu og vanlíðan yfir daginn.

Hvernig virkar Brizo?

Rannsóknir benda til þess að Brizo geti dregið úr stækkun blöðruhálskirtils á umtalsverðan hátt eftir þriggja mánaða notkun, þar sem SC012 virðist draga úr bólgu og þrýstingi í blöðruhálskirtlinum. Þetta getur leitt til þess að einkenni minnki og þvagflæði batni.

Sumir finna jafnvel fyrir létti eftir aðeins 1–2 vikur, þó að hámarksárangur náist gjarnan eftir nokkrar vikur eða mánuð.

Hvernig á að taka Brizo?

  • 1 hylki á morgnana
  • 1 hylki á kvöldin
  • Með eða án matar


Til að ná þeim árangri sem rannsóknir sýna þarf að taka bæði hylki á hverjum degi.

Hverjir ættu að íhuga Brizo?

Brizo hentar körlum sem upplifa:

  • Tíð næturþvaglát
  • Slappa eða slitrótta þvagbunu
  • Bráða tilfinningu um að þurfa strax á klósettið
  • Óþægindi í þvagfærum
  • Merki um stækkaðan blöðruhálskirtil
0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu