Fara á efnissvæði

Ofurfræin sem einfaldlega gera lífið betra

Chia fræ innihalda meira prótein en flestar aðrar korntegundir, meira kalsíum en mjólk, eru hlaðin af Omega-3, andoxunarefnum, vítamínum og steinefnum sem líkaminn notar til að vernda frumurnar gegn sindurefnum ❤
Chia Grautur

Chia fræ voru notuð til forna af Inkum, Aztekum og Mayum sem mikilvægur orkugjafi, enda var talið að fræin byggju yfir galdramætti. En það er ekki alls fyrir löngu sem þessi öflugu fræ, sem sumir sérfræðingar vilja telja að séu eitt af hollustu matvælum á jörðinni, voru viðurkennd sem ofurfæða. 

Láttu ekki smæðina blekkja þig – stærra er ekki alltaf betra. Njóttu þess að næra líkamann með þessum litlu orkubombum. Hérna eru nokkrar einfaldar leiðir til að byrja daginn með þessum ofurfræjum 😊 

Hver þekkir ekki annasama morgna, þar sem enginn tími gefst í að dúlla sér við að útbúa hollan morgunmat. Ekki örvænta, chia grautur er hinn fullkomni morgunmatur sem tekur enga stund að gera. 

Ein ofur einföld

Ekki flækja hlutina – hér er ofureinföld útgáfa af chia graut sem er bæði bragðgóður og fljótlegur.

- 2-3 msk af chia fræjum 
- 1-1,5 dl af möndlumjólk með vanillubragði 

Hrærið vel saman 

Látið blönduna standa í krukku (ef borða á í vinnunni/skólanum) eða skál (ef borða skal heima) í 10-15 mínútur, á meðan skellir þú þér í snögga sturtu, burstar tennur og klæðir þig.  Svo er bara að hoppa (varlega!) inn í eldhús og hræra aðeins aftur í blöndunni svo fræin nái að draga enn betur í sig gómsætu möndlumjólkina og þannig virkjað fræin betur. Ferð svo og greiðir þér, setur upp andlitið (ef það á við) og kviss, bang, búmm, grauturinn er tilbúinn. 

Þú getur gert máltíðina enn matarmeiri með því að setja t.d. banana eða aðra ávexti, ber, hnetur, fræ, rúsínur eða kókos saman við grautinn – veldu bara það sem þér þykir gott.  

Deluxe útgáfa

Svo er hægt að gera deluxe útgáfu af chia graut. Gerðu stærri uppskrift svo þú getir átt hann fyrir nokkra daga í kælinum. 

- ¾ dl chia fræ
- ¼ dl sesam fræ 
- ¼ dl graskersfræ 
- ¼ dl sólblómafræ 
- ½ dl rúsínur 
- 1-2 tes kanill (einnig hægt að nota vanillu) 
- Smá salt 
- 2,5 dl vatn  (einnig hægt að nota t.d. möndlumjólk eða helming vatn/helming möndlumjólk) 

Öllu blandað vel saman í skál og leyft að standa í ísskáp yfir nótt eða í minnsta kosti 20-30 mínútur á borði.  Geymist vel í 5 daga í ísskáp. Svona getur verið auðvelt að undirbúa graut fyrir nokkra daga í einu.  
 
Ef þér finnst grauturinn of þykkur er lítið mál að bæta möndlumjólk eða vatni út í og hræra. Ef þú vilt heitan graut er hægt að hita möndlumjólkina eða bæta svolitlu heitu vatni við. Svo er gott að toppa grautinn með banana, hnetum, kókósflögum eða hverju því sem þér þykir gott. 

Fleiri skemmtilegar hugmyndir með chia fræjum

Hérna eru svo fleiri skemmtilegar hugmyndir til að nota þessi dásamlegu fræ

- Bættu 2-3 msk af chia fræjum út í uppáhalds hummusinn þinn 
- Bættu 2 msk af chia fræjum út í hafragrautinn 
- Bættu chia fræjum út í jógúrtina 
- Bættu chia fræjum út í smoothie-inn 
- Notaðu chia fræ sem þykkingarefni í dressing eða sultur  
- Settu chia fræ út í brauðuppskriftirnar 
 
Trefjarnar í chia fræjunum eru einstakar og sumir vilja meina að þetta séu bestu trefjar sem við getum í okkur látið. 

Þolir þú ekki chia fræ?  - ekki örvænta, því krafturinn í hörfræjum er einnig magnaður.

Það er aldrei eitthvað eitt sem hentar öllum og því svo frábært hvað náttúran hefur upp á mikið úrval að bjóða ❤ 

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu