Hráefni:
- Lífrænar sítrónur
- Lífrænt engifer
Afar auðvelt er að útbúa tiltekna ísmola en í raun felst uppskriftin einungis í að pressa því magni sem þér lystir af sítrónu og engifer í djúsvel.
Ef þú hefur ekki tök á að nota lífræn hráefni, mælum við með að hreinsa þau afar vel eða hreinlega flysja. Sítrónubörkurinn gefur samt sem áður einstakt bragð sem vert er að prófa að nota, en þú stjórnar ferðinni.
Eftir að búið er að djúsa sítrónurnar og engiferið saman er safanum hellt í klakabox og sett í frysti. Þegar klakarnir eru tilbúnir mælum við með að geyma þá í lokuðu boxi í frysti en þannig geymast þeir lengur og betur.
Ísmolana má nota við ýmis tækifæri, hvort sem verið er að næra sig upp úr flensupest eða bara til að fá smá hlýju í kroppinn á morgnana sem bæði örvar meltinguna og getur unnið gegn ýmsum kvillum sem kunna að vera í líkamanum. Einnig er hægt að bragðbæta og efla uppáhalds þeytinginn með því að bæta einum ísmola í, eða setja út í mataruppskriftina, eins og uppáhalds indverska réttinn. Engifer og sítrónur innihalda einstök efni fyrir húðina og því ekkert því til fyrirstöðu að koma jafnvægi á líkamann og næra húðina innan frá á sama tíma, ekki slær maður hendinni á móti því.
Heilsuhillan mælir með að eiga ávallt þessa kraftmiklu ísmola tiltæka í frystinum.
Tvö glös á dag koma heilsunni í lag, segja þeir!