Fara á efnissvæði

Heilsuformúla sem er töfrum líkust

Þessi heilsuformúla kemur beint frá Sómalíu en góðkunningi Heilsuhillunnar deildi þessari uppskrift með okkur en hún ólst upp í Sómalíu og gaf faðir hennar henni þessa formúlu daglega þegar hún var barn. Hún tekur þessa formúlu inn daglega enn í dag, enda segir hún að þessi formúla haldi sér heilbrigðri allt árið. Sýnt hefur verið fram á að svört cumin fræ eða Nigella fræ eins og þau eru einnig kölluð, innihaldi áhrifarík andoxunarefni, sem hafa bæði bakteríudrepandi og bólgueyðandi áhrif. Þessi fræ eru oft notuð til að berjast gegn sýkingum og styrkja ónæmiskerfið, auk þess eru þau talin hjálpa gegn höfuðverk, meltingarvandamálum, tannpínu, ofnæmi og fleira - hrein töfrafræ!
Magic

Heilsuformúlan

- 2 lítil hvítlauksrif

- 4 matskeiðar af hunangi (mælt með fljótandi hunangi)

- 2 tsk fínmöluðum svört cumin fræ/Nigella fræ

- ½ teskeið af ólífuolíu

Aðferð

Byrjaðu á því að pressa hvítlaukinn með hvítlaukspressu. Blandaðu hvítlauknum saman við hunangið, olífuolíuna og fínmöluðu cumin fræin. Ef hunangið er of þykkt geturðu hitað það aðeins upp áður en þú blandar því í blönduna eða valið fljótandi hunang.

Byrjaðu morguninn með teskeið af þessari blöndu fyrir morgunmat. Þú getur annaðhvort sett teskeiðina í teið, heitt vatn eða bara beint upp í munninn, þitt er valið.

Ef þú ert með kvef, astma eða ert að díla við einhvers konar öndunarerfiðleika, er mjög gott að setja blönduna í heitt vatn í skál, setja handklæði yfir höfuðið til að loka gufuna inni og anda henni að þér. Andaðu djúpt niður í lungun í 5-10 mínútur eða lengur ef þú vilt. Olían í svörtu cumin fræjunum hefur slímleysandi áhrif og slakar á öndunarvegi. Fullkomin blanda fyrir kvef, astma eða önnur lungna- og sinuskvilla.

Fyrir almenna heilsu styrkir þessi blanda ónæmiskerfið. Prófaðu að taka það einu sinni á dag í þrjár vikur og finndu muninn.

Njóttu!

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu