Fara á efnissvæði

Upplifir meiri ró í huganum

Athafnakonan Íris Líf Stefánsdóttir hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum upp á síðkastið en það er ekki að ástæðulausu þar sem hún deilir hinum ýmsu ráðleggingum hvað varðar m.a. sparnað og almenn heilsuráð sem landinn er æstur í að fylgjast með. Íris Líf hefur mikinn áhuga á líkama og hug en við fáum hér að skyggnast örlítið inn í hennar líf og hvernig hún náði að auka einbeitingu og upplifa meiri ró yfir daginn.
Íris Líf Heilsublaðið

„Ég er manneskja sem er með marga bolta á lofti á hverjum degi. Ég rek fyrirtæki, er í miklu skapandi ferli, tek ákvarðanir allan daginn og þarf að vera mjög skörp í hausnum, bæði í vinnu og einkalífi. Á tímabili fann ég að þó ég væri líkamlega ekki þreytt, þá var hugurinn oft „fullur“ og einbeitingin flökti og mér fannst erfitt að halda mér við efnið. Ég er rosalega metnaðarfull og þarf að nýta dagana mína eins vel og ég mögulega get. Fyrir mér snýst lífið ekki bara um að „komast í gegnum daginn“, heldur að líða vel á meðan, hafa orku, einbeitingu og rými í hausnum til að njóta þess sem maður er að gera,“ segir Íris Líf sem vill miðla þessum hugsunarhætti til fleiri en lífið á ekki að snúast um að þjóta og vera í flýti, við eigum að njóta þess að lifa og leyfa okkur að líða vel.

Finnur skýran mun á einbeitingu

Mörg okkar kannast eflaust við þessi atriði sem Íris Líf fjallar hér um, þegar kemur að einbeitingarskorti og orkuleysi í amstri dagsins en oft á tíðum er svo gríðarlegur hraði í samfélaginu sem við lifum í. Mörg okkar eru á ferð allan liðlangan daginn sem hefur auðvitað áhrif á okkur heilt yfir.

„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á því hvernig líkami og hugur vinna saman en því ákvað ég að prófa Lion‘s Mane til þess að athuga hvort að það myndi auka einbeitingu hjá mér. Eftir að ég fór að taka Lion‘s Mane reglulega fann ég smám saman breytingu. Mér fannst auðveldara að halda einbeitingu, klára verkefni án þess að vera stöðugt að hoppa á milli og ég upplifði meiri ró í huganum. Í dag er Lion‘s Mane orðið fastur liður í minni heilsurútínu og ég finn skýran mun á minni einbeitingu þá daga sem ég gleymi að taka það,“ segir Íris Líf sem hvergi er hætt að dásama virkni vörunnar sem hefur reynst henni ansi vel.

I Lionsmaneplus Petri JBP5433 Newnordic 20 Jun 24 30146 J DK

Eitt öflugasta náttúrulega efni til að styðja við heilaheilsu og taugakerfi

Þessi einstaki sveppur, Lion‘s Mane, sem hefur náð gríðarlegum vinsældum á heimsvísu er þekktur fyrir ýmsa heilsufarslega ávinninga sína, sérstaklega tengda heila og taugakerfi. Hann er talinn skerpa á einbeitingu hugans sem og styðja við almenna vellíðan og orku ásamt því að hafa góð andoxandi áhrif á líkamann.

Sveppurinn hefur verið notaður í aldanna raðir í austurlenskum lækningum og er nú álitinn einn af öflugustu náttúrulegu efnum til að styðja við þessa þætti.

Lion‘s Mane Plus frá New Nordic er gríðarlega öflug blanda sem er þróuð með það að markmiði að auka einbeitingu, minni og andlega skýrleika.

Formúlan inniheldur Lion's Mane svepp, strandfuru sem þekkt er fyrir að hafa jákvæð áhrif á blóðflæði í minnstu æðum líkamans, langpipar sem styður við frásog og upptöku annarra jurta, joð sem er mikilvægt steinefni sem stuðlar að eðlilegri vitsmunastarfsemi ásamt B vítamínum, svo sem pantóþensýru (B5 vítamín) sem stuðlar að eðlilegri andlegri getu og því að draga úr þreytu og lúa.

„Ég mæli hiklaust með Lion‘s Mane fyrir öll þau sem vilja skerpa á einbeitingunni og halda fókus jafnt og þétt yfir allan daginn ásamt því að upplifa meiri ró,“ segir Íris Líf.

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu