Fara á efnissvæði

Stefnan sett á Ólympíuleikana 2028

Ágúst Ingi Davíðsson hefur verið að notast við vörur frá Natures Aid til að efla líkamann og styðja við endurheimtaferlið með frábærum árangri.
Ágúst Ingi

Ágúst Ingi Davíðsson er fimleikamaður sem keppir fyrir landslið Íslands og Gerplu. Ágúst Ingi hefur náð eftirtektarverðum árangri í fimleikum en meðal helstu afreka er Íslandsmeistaratitill á gólfi 2024, fjórða sæti á gólfi á heimsmeistaramóti 2024, fimmta sæti á tvíslá á heimsmeistaramóti 2024, þriðja sæti í liðakeppni á norðurlandamótin 2024 og níunda sæti í Norður-Evrópu 2024. Ágúst stefnir á að ná hæðstu hæðum í fimleikum og er stóra markmiðið að keppa á Ólympíuleikunum 2028.

Áhrifin leyna sér ekki

Sem afreksíþróttamaður stendur Ágúst Ingi frammi fyrir mikilli líkamlegri áreynslu og leggur þar að leiðandi mikla áherslu á endurheimt. Hann ákvað að nota vörurnar Beetroot og Glucosamine frá Natures Aid til að styðja við endurheimtaferlið sitt og hefur fundið áberandi áhrif frá vörunum. „Ég upplifi hraðari endurheimt í líkamanum mínum en áður. Auk þess finn ég fyrir meiri mýkt í liðum eins og úlnliðum, olnbogum og öxlum. Sem fimleikamaður er ég undir miklu líkamlegu áreiti og þarf að hugsa mikið um endurheimt líkamans. Hröð endurheimt skiptir mig öllu máli til þess að geta haldið uppi því æfingaálagi sem ég vil hafa.“

Náttúrulegur stuðningur fyrir liðheilsuna

Glúkósamín og Kondrótín formúlan frá Natures Aid styður við liðheilsu og getur hjálpað að draga úr óþægindum í liðum. Glúkósamín er náttúrulegt efni í líkamanum sem gegnir lykilhlutverki í viðgerð og viðhaldi liða en viðbót þess í formi bætiefna getur aukið framboð þess og eflt viðgerðarhæfni líkamans.

Ég upplifi hraðari endurheimt í líkamanum mínum en áður.

Formúlan sameinar glúkósamín og kondrótín súlfat, sem er byggingarefni brjósks og geta þessi tvö efni saman haft jákvæð áhrif á liðina. Auk þess inniheldur formúlan engifer og túrmerik, sem er þekkt fyrir heilsueflandi eiginleika og C- vítamín sem stuðlar að myndun kollagens fyrir eðlilega starfsemi brjósks.

Beetroot&Gluc

Rauðrófuhylkin hentug lausn

Rauðrófur eru frábær kostur til að efla líkamann og heilsuna náttúrulega enda eru þær sneisafullar af næringar- og plöntuefnum. Þær innihalda m.a. ríkulegt magn af A-, B6- og C- vítamíni, ásamt fólínsýru, kalíum, magnesíum og trefjum. Rauðrófan er þar að auki rík af öflugum andoxunarefnum, sem geta stuðlað að endurheimt líkamans og er áhugi á notkun hennar sem bætiefni sífellt að aukast. Rauðrófur geta bætt árangur í daglegu amstri, en þær eru sérstaklega þekktar fyrir að bæta súrefnisupptöku og auka blóðflæði líkamans, sem getur einnig aukið snerpu, orku og úthald. Rauðrófuhylkin frá Natures Aid eru frábær kostur til þess að nýta heilsueflandi mátt rauðrófunnar á einfaldan og áhrifaríkan máta.

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu