Fara á efnissvæði

Sama hvað ég borðaði, þá leið mér alltaf illa

Mörg okkar þekkja hvernig það er að finna fyrir uppþembu eða óþægindum eftir máltíðir. Stundum þarf ekki stórar breytingar til að gera gæfumuninn og það var einmitt raunin hjá Nadíu Sif. Hér segir hún frá sinni reynslu.
Nadía Sif (3) Copy

Heilbrigð melting er grunnur að líkamlegri og andlegri vellíðan. Til þess að meltingarferlið starfi eðlilega þurfa meltingarensím að vera til staðar, en þau eru prótein sem hjálpa líkamanum að 
brjóta niður fæðu og styðja við upptöku næringarefna.

Líkaminn framleiðir þessi ensím sjálfur, en ýmsir þættir geta haft áhrif á framleiðsluna. Þegar meltingin er ekki í jafnvægi geta komið fram einkenni eins og uppþemba, gasmyndun og önnur meltingaróþægindi sem geta haft áhrif á almenna líðan. 

Alltaf illt í maganum

Nadía Sif Líndal Gunnarsdóttir, 26 ára áhrifavaldur, fyrirsæta og leikari var orðin ansi þreytt á uppþembu og óþægindum sem fylgdu í kjölfar máltíða. Einkenni sem hún þurfti að glíma við voru farin að hafa mikil áhrif á andlega líðan. „Ég hafði lengi verið að glíma við mikla uppþembu eftir máltíðir þar sem maginn á mér blés út ef svo má segja, nánast samstundis. Það var alveg sama hvað ég borðaði, hvort sem það var mikið eða lítið magn af mat, ég var alltaf uppþembd og illt í maganum. Þessi einkenni höfðu mikil áhrif á hvernig mér leið yfir daginn og sérstaklega eftir ákveðnar máltíðir, sem voru kannski aðeins stærri eða þyngri,“ segir Nadía Sif. Hún segist loks hafa fundið leið sem virkar fyrir sig. Sú litla breyting að bæta meltingarensímum inn í rútínuna hefur haft jákvæð áhrif og í dag getur hún frekar notið þess að borða án þess að upplifa sömu óþægindi. 

Nadía Sif kynntist meltingar ensímunum Digest Gold þegar hún rakst á sögu áhrifavalds sem hafði líkt og hún sjálf verið að glíma við ýmis meltingaróþægindi. „Ég ákvað að prófa sjálf þessi tilteknu meltingarensím og sjá hvort að ég myndi finna mun á mér. Eftir að ég byrjaði að taka þau inn hef ég fundið greinilegan mun á meltingunni og mér líður almennt betur eftir máltíðir og jafnframt heilt yfir,“ segir Nadía Sif. Hún segir þessa einföldu viðbót hafa haft meiri áhrif en hún bjóst við. „Það sem ég tek mest eftir er að ég fæ ekki lengur þessi miklu þyngsli í magann eftir kjötmáltíðir og mér finnst meltingin vinna mun betur með fæðu sem hafði áður verið erfið fyrir meltinguna, eins og brauð og þyngri kolvetni,“ segir hún.

„Það var alveg sama hvað ég borðaði, ég var alltaf uppþembd illt í maganum.“
Digest Gold 1 1

Öflugustu meltingarensím sem völ er á

Meltingarensím hjálpa líkamanum að brjóta niður prótein, fitu og kolvetni úr fæðunni. Fyrir sum geta meltingarensím verið góður kostur, sérstaklega ef þau upplifa óþægindi eftir stærri eða fjölbreyttar máltíðir. Digest Gold hefur notið mikilla vinsælda og er meðal mest seldu meltingarensíma í Bandaríkjunum. 

Það sem aðgreinir Digest Gold er að varan sameinar tvær ólíkar formúlur í einni vöru. Annars vegar fjölbreytta ensímformúlu sem styður við niðurbrot próteina, fitu, kolvetna og ákveðinna plöntutrefja og hins vegar ATPro®, sérhannaða blöndu sem inniheldur ATP (adenósínþrífosfat), orkuefni sem allar frumur líkamans nýta, ásamt magnesíum sítrati, kóensími Q10 og phytase. 

Að auki er Digest Gold byggt á einkaleyfisvarinni Therablend® tækni sem er hönnuð til að ensímin geti verið virk við mismunandi sýrustig í meltingarveginum. 

„Þó svo að upplifun sé alltaf einstaklingsbundin, þá hafa þessi ensím verið algjör „game changer“ fyrir mig þegar kemur að því að vera ekki stöðugt að glíma við uppþembu og líða almennt betur eftir máltíðir,“ segir Nadía Sif að lokum.

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu