Fara á efnissvæði

Getur gengið og prjónað án óþæginda þökk sé Nutrilenk

Júlíana Guðmundsdóttir, eða Júlí eins og hún er kölluð, er mikil félagsvera og þykir fátt skemmtilegra en að eyða tíma með sínum nánustu, fara í góðar göngur og prjóna. Júlí var hins vegar farin að finna fyrir miklum óþægindum í líkamanum um tíma, en fann leið til að ná aftur jafnvægi og vellíðan. Hér deilir Júlí með okkur sinni reynslu og segir frá því hvernig göngurnar urðu aftur ánægjulegar og prjónarnir í fullu fjöri.
20260107 125947760 Ios

,,Ég er ofsalega hress HELDRIBORGARI eins og ég kýs að kalla mig og lifi fyrir góðan félagsskap. Mér finnst mikilvægt að vera dugleg að hitta fjölskyldu og vini sem ég geri nánast daglega og enn skemmtilegra þegar fólkið mitt fer með mér út að ganga, sem að ég geri flesta daga vikunnar. Ég ferðast líka mikið bæði innanlands sem og erlendis og prjóna sem er góð dægrastytting. Ég var farin að finna fyrir óþægindum í líkama sem höfðu áhrif á prjónaskap minn og einnig var ég orðin slæm í hnjánum og þar sem ég geng mikið var það farið að há mér í daglegu lífi,‘‘ segir Júlí.

,,Mér var bent á Nutrilenk Gold liðbætiefnið sem ég fór að taka inn og fann ég fljótlega mikinn mun á mér. Ég prófaði eitt sinn að hætta að taka inn töflurnar í smá tíma og þá fór mér að versna aftur í hnjánum og göngurnar urðu erfiðari fyrir mig sem og prjónaskapurinn var ekki eins huggulegur. Ég þurfti því ekki að hugsa mig tvisvar um og hóf inntöku á Nutrilenk á ný og tek ég það á hverjum degi og mæli hiklaust með. Það má með sanni segja að í dag geti ég farið í mínar góðu göngur og prjónað þökk sé Nutrilenk,‘‘ segir Júlí með stórt bros á vör, enda ríkir mikil gleði að geta sinnt sínum helstu áhugamálum án óþæginda sem slíkra.

AP Feed4

Nutrilenk liðbætiefnin sem ansi mörg okkar þekkja

Nutrilenk liðbætiefnin eru mörgum hverjum góðkunnug en þau hafa verið ein mest seldu liðbætiefnin hér á landi til lengri tíma. Nutrilenk línan inniheldur þrjár vörur sem nefnast Nutrilenk Gold, Nutrilenk Active og Nutrilenk Gel en allar hafa þessar vörur það að markmiði að draga úr stirðleika og eymslum í liðum sem og bæta lífsgæði okkar með einstakri virkni og gæðum.

Nutrilenk Gold er unnið á einstakan hátt til að líkaminn nýti virku innihaldsefnin sem best. Helstu innihaldsefni eru kondrótín, kollagen og kalk ásamt D- og C vítamíni sem stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir eðlilega starfsemi beina og brjósks. Einnig inniheldur formúlan mangan sem stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina.

Nutrilenk Active inniheldur hýalúronsýru og virkar sem smurning á stirða liði og er fyrst og fremst ætlað þeim sem þjást af minnkuðum liðvökva. Minnkaður liðvökvi lýsir sér oftast í stirðleika og sársauka í kringum liðamót.

Nutrilenk Gel virkar kælandi og hentar bæði á auma liði og vöðva en nota má gelið bæði fyrir og/eða eftir hreyfingu. Gel inniheldur meðal annars eucalyptus ilmkjarnaolíu og engifer þykkni sem hafa verið notuð í aldanna raðir við ýmsum kvillum og óþægindum.


Nutrilenk línan virkar einstaklega vel öll saman en einnig hver vara sér í sínu lagi.

Nutrilenk - Öflugur liðstyrkur

3430-Nutrilenk-update-05.06.jpg Vítamín Nutrilenk GULL 180 töflur NUTRILENK GOLD hefur hjálpað þúsundum Íslendinga sem þjást af liðeymslu...
Vara til á lager
Verð 6.898 kr
Error
112-IS Nutrilenk Active 30 kps 050424.png Vítamín Nutrilenk Active 30 hylki Nutrilenk Active inniheldur hýalúronsýru sem unnin er úr vatnsrofnum ha...
Vara til á lager
Verð 3.198 kr
Error
774-Nutrilenk IS_WEB_2000x2000px_1801225.jpg Liðir vöðvar og bein Nutrilenk Gel Nutrilenk Gel er hugsað bæði fyrir liði og vöðva en það er kælandi og e...
Vara til á lager
Verð 3.698 kr
Error
0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu