Sumar konur upplifa ákveðið frelsi og fagna þessum tímamótum og því að vera komnar á þann stað í lífinu að búa yfir meiri sjálfsþekkingu, visku og þroska. Hins vegar eru aðrar konur sem kvíða fyrir þessum breytingum og þeim líkamlegu og andlegu einkennum sem fylgt geta í kjölfarið. Þau einkenni sem oftast eru til umræðu og flestar konur kannast við eru svitakóf, nætursviti og óreglulegar eða engar blæðingar. Önnur einkenni geta einnig verið svo sem óútskýrð þyngdaraukning, svefnleysi og depurð en 9 af hverjum 10 konum finna fyrir andlegri vanlíðan á breytingaskeiðinu.
Maríanna Björg fór skyndilega að upplifa mikil einkenni breytingaskeiðsins 53 ára gömul. Daginn í dag, tveimur árum seinna mælir hún hiklaust með Femarelle fyrir allar konur sem komnar eru á þetta margbreytilega skeið þar sem varan breytti hennar líðan til hins betra.
Þegar ég hóf inntöku Femarelle fann ég strax mikinn mun á líðan, ég varð orkumeiri og aðeins 3 vikum seinna voru hitakófin gjörsamlega hætt - Maríanna Björg
,,Ég hafði heyrt um Femarelle en systir mín notaði það með góðum árangri og sagði mér frá því. Ég ákvað að prófa Femarelle Recharge þar sem ég var orðin ansi þreytt á svefnlausum nóttum, vanlíðan og endalausum hitakófum, ég hafði prófað ýmislegt annað en ekkert virtist hjálpa mér. Þegar ég hóf inntöku Femarelle fann strax mikinn mun á líðan, ég varð orkumeiri og aðeins 3 vikum seinna voru hitakófin gjörsamlega hætt, þvílíkur léttir sem það var.
Ég hef notað Femarelle núna í 2 ár og prófaði fyrir stuttu síðan að taka pásu þar sem ég var viss um að ég væri hreinlega komin yfir þetta tímabil. En viti menn, það leið mjög stuttur tími þar til ég byrjaði að svitna aftur og þá sá ég það á svörtu og hvítu að Femarelle var það eina sem virkaði fyrir mig. Ég var fljót að byrja að taka það aftur og fann strax hvað mér líður vel þegar ég tek inn Femarelle. Enn og aftur varð ég laus við öll einkenni og er svo hamingjusöm með að líða eins og ég sjálf aftur daginn í dag.
Ég mun ekki sleppa því að taka inn Femarelle aftur, það er það eina sem hefur virkað fyrir mig.“ segir Maríanna alsæl.
Einstök viðbót á breytingaskeiðinu
Fjölmargir kvensjúkdómalæknar í Evrópu mæla með Femarelle vörulínunni sem fyrstu meðferð við breytingaskeiðinu þar sem Femarelle er hormónalaus lausn við einkennum. Vörulínan inniheldur 3 vörur svo allar konur ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Helsta innihaldsefni í vörulínu Femarelle er einkaleyfisvarið efnasamband, DT56a, sem virkar þannig að það örvar estrógen-nema í staðbundnum vef, ásamt því að efnið slær á einkenni tíðahvarfa án þess að hafa nokkur neikvæð áhrif á vef í móðurlífi eða brjóstum.
Femarelle Rejuvenate hentar konum sem eru að upplifa fyrstu einkenni hormónabreytinga og áður en óregla kemst á blæðingar. Blandan inniheldur hörfræ, B2- og B7-vítamín sem stuðlar að eðlilegum efnaskiptum ásamt viðhaldi eðlilegrar húðar, slímhúðar og hárs.
Femarelle Recharge er fæðubótarefni fyrir konur sem eru komnar á breytingaskeiðið, hafa óreglulegar blæðingar eða eru alveg hættar á blæðingum. Varan inniheldur B6-vítamín sem stuðlar að því að halda reglu á hormónastarfsemi og dregur úr þreytu og lúa.
Síðast en ekki síst er Femarelle Unstoppable sem er fæðubótarefni fyrir konur sem komnar eru af breytingaskeiðinu eða þegar einkenni hætta. Blandan inniheldur B2- og B7-vítamín, kalk og D-vítamín sem stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina.
Femarelle vörulínan er afar hentug fyrir konur sem eru að ganga í gegnum þetta margbreytilega skeið og geta allar fundið eitthvað við sitt hæfi.
Áhugaverðir punktar sem allar konur ættu að lesa sig til um og hafa í huga:
- Þú getur byrjað að finna fyrir einkennum um eða jafnvel fyrir 40 aldur.
- Þú getur verið byrjuð á breytingaskeiðinu þó svo að þú sért ekki að upplifa hita- og svitaköst.