Melting skiptir sköpum þegar kemur að heilsu en oft er sagt að góð heilsa byrji innan frá. Uppþemba og vindgangur eru meðal algengustu einkenna þegar kemur að ójafnvægi í meltingarvegi en ammóníak og vetnisgös mynduð af þarmabakteríum valda þessu þegar fæðan sem við neytum er melt. Margir hafa upplifað einhvers konar uppþembu, vindgang eða önnur óþægindi eftir fæðu sem er eðlilegt annað slagið, en regluleg óþægindi tengd meltingu eru það hins vegar ekki. Ef að við upplifum stöðug meltingaróþægindi í kjölfar fæðu getur það haft bein áhrif á bæði líkamlega og andlega líðan okkar. Rannsóknir hafa sýnt fram á að ýmsir kvillar sem herja á okkur, svo sem vandamál sem tengjast meltingu og andlegri líðan eigi rætur sínar að rekja til þarma og er því vert að huga að góðri þarmaheilsu.
Heilbrigð melting er grunnur að góðri heilsu
Anna Steinsen, þjálfari og einn eigenda KVAN hafði lengi átt í vandræðum með meltingu en eftir nánast hverja einustu máltíð upplifði hún mikla uppþembu sem skilaði sér í miklu orkuleysi og vanlíðan. Þessar áskoranir höfðu mikil áhrif á daglegt líf og þar með lífsgæði en hún var m.a. farin að forðast ákveðnar fæðutegundir og naut þess ekki lengur að borða góðan mat með fjölskyldu og vinum. Anna hafði prófað ýmis ráð en ekkert hafði virkað fyrir hana sem skyldi. Þegar Anna kynntist Cura Sporebiotics varð hins vegar loks mikil breyting sem hún segir hér frá.
Ég var lengi vel alltaf uppþembd og meltingin ekki upp á sitt besta, sérstaklega eftir að ég byrjaði á breytingaskeiðinu
,,Í gegnum þennan tíma var ég búin að prófa allskonar mismunandi mataræði og töflur til þess að reyna að laga ástandið en oftar en ekki fór það í sama farið. Mér þótti erfitt að njóta matar en ég var alltaf örlítið stressuð um að ég yrði mikið uppþembd og líðan ekki góð í kjölfarið. Góð vinkona benti mér á svokallaða Cura Sporebiotics grógerla sem ég hafði aldrei heyrt um áður en ég var tilbúin að prófa það eins og margt annað. Eftir að ég byrjaði að taka gerlana fann ég mikinn mun á mér. Í dag er meltingin mun betri og ég er ekki eins uppþembd og ég var vön og í kjölfarið líður mér betur,’’ segir Anna Steinsen um tilkomu Cura Sporebiotics
Hvað eru þessir Cura Sporebiotics gerlar?
Cura Sporebiotics er blanda svokallaðra grógerla sem hafa þá sérstöðu að vera unnir úr gerlaflóru heilbrigðs einstaklings. Grógerlarnir eru vandlega samsettir með afar árangursríkum, öruggum og sannprófuðum gróstofnum. Ólíkt mörgum hefðbundnum góðgerlum eru grógerlarnir náttúrulega gall- og sýruþolnir. Því þola þeir ferðina í gegnum meltingarveginn vel. Þegar þeir ná á áfangastað verða gerlarnir virkir, þar sem þeir taka þátt í örveruflóru þarmanna. Gerlarnir innihalda sérstaka blöndu fjögurra mismunandi karótenóíða sem eru beta-karótín, astaxanthin, lútein og lýkópen en hvert þessara karótenóíða hefur einstaka efnafræðilega byggingu og virkni. Í sameiningu veitir blandan öflugan og alhliða stuðning með andoxun en rannsóknir hafa jafnframt sýnt fram á að karótenóíð virka betur þegar þau eru notuð saman. Grógerlarnir hafa það að markmiði að lækka pH-gildi í þörmum, draga úr uppþembu, vindgangi og óþægindum sem tengjast meltingu.
Mikill léttir að þurfa ekki lengur að forðast ákveðnar fæðutegundir
Anna Steinsen er ekki aðeins þjálfari og einn eigenda KVAN, heldur er hún einnig rithöfundur, fyrirlesari og stjórnarformaður UN Women á Íslandi, svo fátteitt sé nefnt. Það má því með sanni segja að hún hafi nóg á sinni könnu.
Það skiptir mig því gríðarlega miklu máli að meltingin sé alla jafna í lagi og að mér líði vel yfir daginn
„Ég vinn þannig vinnu að ég er alltaf á ferðinni og mikið að gera hjá mér sem gerir það að verkum að ég er svolítið að borða á ferðinni. Það skiptir mig því gríðarlega miklu máli að meltingin sé alla jafna í lagi og að mér líði vel yfir daginn. Cura Sporebiotics gerlarnir hafa komið að góðum notum fyrir mig þar sem mér líður betur í meltingunni en gerlarnir hafa að auki margskonar góð áhrif á líkamsstarfsemina sem mér þykir frábær kostur og ég finn fyrir,’’ segir Anna sem hefur góðar sögur að segja um ofangreinda gerla og tekur fram að hún þurfi ekki lengur að hræðast það að borða ákveðnar fæðutegundir og getur notið þess að borða án þess að upplifa eftirköst eins og áður fyrr. Cura Sporebiotics gerlarnir hafa jafnframt það að markmiði að stuðla að heilbrigðu ónæmiskerfi sem og hafa jákvæð áhrif á húð, þvagrás og hormónajafnvægi.
Cura Sporebiotics hentar fullorðnum og börnum eldri en þriggja ára. Mælt er með að fullorðnir taki 1 hylki daglega fyrsta mánuðinn og þar á eftir 1 hylki annan hvern dag. Börn ættu að taka ½ hylki daglega.
Cura Sporebiotics
- Eru unnir út frá gerlaflóru heilbrigðs einstaklings
- Eru gall- og sýruþolnir frá náttúrunnar hendi
- Lifa af ferðalagið niður í þarmana
- Þarf EKKI að geyma í kæli
- Má opna og nota innihaldið án þess að það hafi áhrif á virkni
- Hentar vel samhliða sýklalyfjum