Fara á efnissvæði

Prófaðu þetta næstu 10 daga

Það er eitthvað við hátíðir og frídaga sem kveikir í þessari hugsun hjá mörgum, „Ég ætla bara að leyfa mér að njóta núna…og byrja svo eftir páska jól, áramót, helgi, sumarfrí....“ Kannast þú við þetta?
Drekka Proteinshake

Sannleikurinn er sá að þú þarft ekki að byrja aftur. Heilsan er ekki eitthvað sem þú ferð á og af, hún fylgir þér í gegnum lífið, líka yfir páskana..

Já, fáðu þér páskaegg og njóttu. Fáðu þér góðan mat og njóttu. En prófaðu líka að halda örlítilli tengingu við sjálfa/n þig á sama tíma.

Það getur verið eins einfalt og að:

- byrja daginn vel með próteinríkum morgunmat
- hreyfa þig daglega
- hlusta á hvenær þú ert södd/saddur

Þetta snýst ekki um að vera fullkomin/n, heldur að missa ekki tengslin við sjálfa/n sig.

Heilsan er ekki byggð á fullkomnum dögum, heldur á litlum, góðum venjum sem gerðar eru daglega.

Litlar ákvarðanir sem breyta miklu

Það sem skiptir mestu máli er ekki það sem þú gerir stundum, heldur það sem þú gerir aftur og aftur.

Það sem virkar oft best er að:

- bæta við góðum venjum, frekar en að taka eitthvað út

- velja betur, en ekki endilega minna

Prófaðu þetta næstu 10 daga

Á hverjum degi:

- Byrjaðu daginn á vatni (1 glas á tóman maga)

- Fáðu þér próteinríkan morgunmat

- Farðu út að hreyfa þig (10–20 mín er nóg)

- Borðaðu eitthvað næringarríkt áður en þú færð þér eitthvað sætt

- Stoppaðu eitt augnablik og spurðu: „Hvernig líður mér?“

Þetta tekur ekki mikinn tíma, en skilar miklu ef þú gerir þetta daglega.

Það sem skiptir mestu máli er einfalt --> að velja sjálfa/n sig á hverjum degi.

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu