Fara á efnissvæði

Náttúruleg leið að ferskara og bjartara brosi

Langar þig í ferskari andardrátt, ferskan munn og bjartara bros?
SMILE

Það þarf ekki alltaf sterkar tannhvíttanir eða flóknar meðferðir til að gefa brosinu smá „glow“. Stundum eru einföldustu venjurnar þær sem gera mest, sérstaklega þegar þær styðja ekki bara við útlitið heldur líka munnheilsuna sjálfa.

Ein aðferð sem hefur notið mikilla vinsælda síðustu ára kallast oil pulling - gömul hefð sem felst í því að skola munninn með olíu í nokkrar mínútur á dag.

Kókosolía er sérstaklega vinsæl í þetta, enda mild á bragðið og náttúrulega rík af fitusýrum sem margir telja geta hjálpað til við að hreinsa munnholið á mildan hátt. Með reglulegri notkun upplifa margir:

  • ferskari andardrátt
  • hreinni tilfinningu á tönnum
  • heilbrigðara tannhold
  • minni uppsöfnun á bakteríum
  • og bjartara bros (hvítari tennur)

Munnholið er ekki aðskilið frá líkamanum, heldur hluti af honum. Þegar jafnvægið í munni er gott getur það haft jákvæð áhrif á bæði munnheilsu og almenna vellíðan. Þess vegna líta sífellt fleiri á munnheilsu sem hluta af heildarheilsu, en ekki bara eitthvað sem snýst um útlit tannanna.

Það eina sem þú þarft að gera er að taka teskeið af kókosolíu og skola munninn í 5–10 mínútur áður en þú burstar tennurnar. Síðan spýtirðu olíunni í ruslið – ekki vaskinn.

Viltu taka þetta skrefinu lengra?

Svo bæta margir örlitlu af túrmerik út í olíuna. Þó það hljómi furðulega, þar sem túrmerik er skær appelsínugult á litinn, er það vinsælt vegna þess að það getur hjálpað til við að hreinsa yfirborðsbletti á mildan hátt án þess að vera gróft og rispað glerunginn.

Þetta tekur aðeins nokkrar mínútur á dag en getur orðið lítil sjálfsræktarrútína sem lætur manni líða ferskari, hreinni og öruggari með brosið sitt.

Bjart bros snýst ekki bara um hvítari tennur. Heldur líka hvernig þér líður þegar þú brosir 😁

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu