Algengar ástæður nartþarfar
Óstöðugur blóðsykur
Þegar blóðsykur sveiflast kallar líkaminn oft á hraða orku. Oft birtist það sem löngun í sykur eða einföld kolvetni, sérstaklega síðdegis eða seint á kvöldin.
Ójafnvægi í meltingarvegi
Þarmaflóran hefur meiri áhrif en margir gera sér grein fyrir. Hún hefur áhrif á hungur, mettun, skap og jafnvel hvað okkur langar í. Þegar jafnvægi raskast getur sykur- og nartþörf aukist.
Streita og svefnleysi
Þreyttur líkami vill skjóta orku. Þá verða sykur, kaffi og snakk auðveld lausn. Hérna er oft taugakerfið undir álagi og við bregðumst við með skjótri orku.
Tilfinningatengd neysla og vanar
Stundum borðum við ekki af hungri heldur af vana, streitu, leiða eða einfaldlega vegna þess að við erum of þreytt til að taka meðvitaða ákvörðun.
Skortur á næringarefnum
Ef líkaminn fær ekki nægt prótein, trefjar, vítamín eða steinefni reynir hann að bæta það upp með skjótfenginni orku.
Vissir þú að ef þú sækist í sætindi eins og súkkulaði er það oft vegna andlegrar þreytu. Að sækjast í súkkulaði gæti verið skortur á hormóninu seratonin (gleðihormón). Ef þú sækist aftur á móti í eitthvað salt eins og snakk, gæti það tengst meira taugakerfinu.
Hvað getur hjálpað þegar löngunin bankar upp á?
Vel samsettar máltíðir
Prótein, trefjar og holl fita hjálpa til við að halda blóðsykrinum stöðugum og minnka líkur á skyndilegri nartþörf.
Stuðningur við þarmaflóruna
Heilbrigður meltingarvegur getur dregið úr sykur- og kolvetnalöngun. Þar skipta trefjar og góðgerlar máli.
Vatn - einfalt en áhrifaríkt
Þorsti er oft rangtúlkaður sem hungur. Stundum dugir einfaldlega eitt glas af vatni.
Svefn og streitustjórnun
Minni streita og betri hvíld jafngilda oft minni löngun. Það hljómar einfalt, en hvert skref að minni streitu og betri hvíld er hverrar mínútu virði.
Gerðu eitthvað sem gleður þig á hverjum degi
Að gefa sér tíma fyrir hluti sem veita ánægju og orku getur dregið úr þörfinni fyrir að leita í mat fyrir huggun eða umbun. Reyndu að finna daglega stund fyrir eitthvað sem þú hefur gaman af, jafnvel þótt það sé aðeins í nokkrar mínútur. Ekki festast í rútínu sem nærir þig ekki.
Staldraðu við og spurðu þig:
„Er ég virkilega svöng/svangur eða er þetta þreyta, leiði eða streita?“
Ef svarið er streita → farðu í stutta göngu
Ef svarið er þreyta → hvíldu þig
Ef svarið er hungur → nærðu líkamann af virðingu
Þegar þú vilt fá aðeins meiri stuðning
Í sumum tilfellum geta bætiefni verið gagnleg sem hluti af heildarnálgun:
Króm styður við jafnvægi blóðsykurs
Magnesíum styður taugakerfið og getur dregið úr streitutengdri löngun
B-vítamín styðja orkuframleiðslu og geta þannig minnkað þreytueinkenni
Góðgerlar styðja meltingarveginn og jafnvægi í líkamanum
Einnig velja margir sértækari stuðning, til dæmis:
Bio-Kult Candea sem getur hjálpað þegar sykurþörf tengist ójafnvægi í meltingarvegi
Apple Cider töflur, sem margir nota sem hluta af daglegri rútínu þegar löngun í sætt eða nart læðist að
Líkami í jafnvægi kallar sjaldnar á skyndilausnir
Matarlöngun er eðlileg. Hún er ekki veikleiki heldur vísbending. Með því að hlusta aðeins betur á líkamann, gera litlar breytingar og sýna sjálfum sér umburðarlyndi er hægt að breyta mynstrum smám saman.
Þegar þú styður líkamann af virðingu svarar hann oft með meiri ró, betra jafnvægi og minni nartþörf 🤍