Sjálfsagi er afl sem breytir hugsjónum í veruleika og löngunum í árangur. Sjálfsagi er ekki meðfæddur; hann er þjálfaður, rétt eins og vöðvar líkamans. Sjálfsagi er hæfileikinn til að velja rétt þegar lífið býður upp á marga kosti.
Sjálfsagi - Leiðin frá draumum til veruleika
Sjálfsaga má líkja við vöðva. Því oftar sem þú notar hann, því sterkari verður hann. Ef þú sleppir æfingunum, veikist hann. Hvenær gafstu síðast upp á einhverju sem þú vissir að myndi gera þér gott? Það var nákvæmlega þá sem sjálfsagavöðvinn hefði þurft á styrk að halda. En góðu fréttirnar eru þær að með litlum, daglegum æfingum geturðu byggt hann upp.
Litlu skrefin – galdurinn á bak við stóru markmiðin
Of oft teljum við okkur trú um að stórir draumar þurfi stór skref. En sannleikurinn er sá að það eru litlu, reglubundnu skrefin sem breyta lífinu. Litlu skrefin, tekin aftur og aftur og aftur, skapa stórar breytingar með tímanum og það eru aðeins afsakanir sem geta staðið í vegi fyrir þér. Þetta er alfarið í þínum höndum, svo hvað er að stoppa þig í upplifa þína drauma? Hverjar eru afsakanirnar? Hvaða sögur segir þú þér sem gætu verið að hindra framgang þinn? Hverjar af þessum sögum eru sannar? Og, ef þær eru ekki sannar, hvernig geturðu breytt þeim þannig að þær styðji við þig frekar en hindri?
Markmið eru góð en þau eru aðeins leiðarljós, venjur og dagleg hegðun er það sem gerir þér kleift að ná þeim. Eitt lítið skref í einu!
Settu stefnu – skipið þitt þarf áttavita
Ef þú veist ekki hvert þú stefnir, er líklegt að þú endir einhvers staðar sem þú vilt ekki vera. Ímyndaðu þér skip án áttavita. Það flýtur stefnulaust og lendir að lokum þangað sem straumarnir hafa dregið það. Sama gildir um líf þitt. Skilgreindu drauma þína og markmið. Skrifaðu þau niður. Þau þurfa ekki að vera fullkomin eða jafnvel raunhæf strax, þau þurfa bara að vera þín.
Veldu þér eitt markmið sem færir þig nær draumum þínum. Hvaða litla skref geturðu gert í dag til að komast nær markmiðinu? Þarftu að byrja á því að hugsa betur um sjálfan þig? Frábært! Hverju ætlarðu að byrja á?
Með hverju skrefi verður leiðin skýrari og árangurinn mun smám saman koma í ljós. Þú munt sjá hvernig lífið byrjar að breytast – ekki vegna einnar stórkostlegrar aðgerðar, heldur vegna samfelldra, lítilla aðgerða sem þú framkvæmir reglulega.
Rútínur og þrautseigja – grunnurinn að árangri
Eins og fram hefur komið er sjálfsagi grunnurinn að sjálfsstyrkingu og langtímaárangri en rútínur eru áhrifaríkasta æfingatækið til að styrkja sjálfsaga. Rútínur eru eins og járnbrautarteinar fyrir sjálfsagann. Þær leiða þig í rétta átt, jafnvel þegar viljastyrkurinn er veikur. Skipulögð rútína hjálpar þér að standast freistingar og halda þér á réttri braut. Skipulagður morgun eða kvöldrútína getur haft ótrúlega góð áhrif á upplifun dagsins.
Mistök eru hluti af ferlinu. Ekki gefast upp þótt á móti blási. Það sem skiptir máli er að halda áfram. Sjálfsagi þýðir ekki fullkomnun, sjálfsagi þýðir framfarir.
Þú þarft ekki að vera fullkomin/n til að byrja - þú þarft bara að byrja!
Ekki bíða eftir rétta tímanum
Ef þú vilt upplifa alvöru breytingar er ekki eftir neinu að bíða, byrjaðu strax í dag. Hafðu í huga að sjálfsagi er afl sem býr innra með þér, tilbúinn til að vakna til lífsins. Með því að leggja þig fram og halda áfram í gegnum allar áskoranir sem munu vera á vegi þínum, getur þú náð ótrúlegum árangri. Ferðin er ekki alltaf auðveld, en verðlaunin eru ómetanleg – styrkur, sjálfstraust og árangur sem gerir lífið svo miklu innihaldsríkara.
Á næsta ári munt þú líta til baka og annað hvort fagna framförum eða sjá eftir því að hafa ekki byrjað. Hvað velur þú? Ekki vera að bíða eftir rétta tímanum – hann kemur aldrei.
Rétti tíminn er núna!