En hvað af þessu er raunverulega að hjálpa fólki? Sannleikurinn er sá að stundum leynast góð ráð á bakvið trendin og stundum eru þau bara markaðssetning.
Við greindum helstu núverandi trend og mátum hvort þau séu þess virði að skoða nánar.
Trend sem eru raunverulega þess virði að prófa
Trefjar, góðgerlar og meltingarheilsa
Þarmaheilsa hefur verið eitt stærsta heilsutrend síðustu ár og það er góð ástæða fyrir því. Meltingin hefur áhrif á miklu meira en bara magann. Hún tengist meðal annars:
- orku
- húð
- ónæmiskerfi
- hormónajafnvægi
- skapi
Sífellt fleiri eru að huga að bæta góðgerlum, trefjum, auðmeltum mat og ensímum til að styðja betur við líkamann innan frá. Betri þarmaheilsa er eitthvað sem allir græða á.
Göngutúrar eftir mat
Kannski eitt vanmetnasta trendið, en 10–15 mínútna ganga eftir máltíð getur hjálpað meltingunni, stutt við blóðsykurinn og hjálpar mörgum að finna fyrir jafnari orku yfir daginn.
Einfalt, ódýrt og mjög áhrifaríkt ráð.
Magnesíum fyrir stress og svefn
Magnesíum er eitt mest notaða og rædda bætiefnið í dag – og ekki að ástæðulausu. Margir upplifa raunverulegan mun, sérstaklega þeir sem:
- sofa illa
- eru undir miklu álagi
- finna fyrir spennu í líkamanum
- eða eiga erfitt með að slaka á á kvöldin
Mikilvægt er að velja það form af magnesíumi sem hentar þér best.
Magnesíum Glycinate hefur vakið mikla athygli undanfarið, ekki síst vegna góðrar upptöku og áhrifa á svefn og slökun.
Prótein
Já…þetta er trend. En líka eitthvað sem margir fá í raun of lítið af. Prótein hjálpar meðal annars við:
- mettun
- að halda stöðugri orku
- vöðvaviðhald
- og bata eftir hreyfingu
Sérstaklega mikilvægt þegar við eldumst eða lifum stressandi lífsstíl.
Dagsbirta á morgnana
Stundum eru einföldustu hlutirnir þeir sem hafa mest áhrif. Að fara út í dagsbirtu fljótlega eftir að þú vaknar getur hjálpað líkamanum að stilla líkamsklukkuna, styðja við orkuna yfir daginn og bæta svefninn á kvöldin.
Einföld heilsuvenja sem allt of fáir nýta sér - þrátt fyrir að hún kosti ekkert.
Trend sem eru mögulega meira hype
Detox te til að „hreinsa líkamann“
Líkaminn er nú þegar með mjög öflugt hreinsikerfi, eins og lifrina, nýrun, meltinguna og húðina.
Þó sumar jurtir geti stutt við meltingu eða vellíðan eru mörg „detox“ trend markaðssett eins og þau geti lagað allt á nokkrum dögum…sem er sjaldnast málið.
Dýrir heilsudrykkir og orkuduft
Það virðist nánast í hverri viku koma nýr drykkur eða duft sem á að gefa meiri orku, bæta fókus, minnka stress og láta manni líða eins og nýrri manneskju.
Margar þessara vara geta vissulega innihaldið áhugaverð innihaldsefni og reynst mörgum vel. En oft gleymist að grunnurinn skiptir mestu máli:
- svefn
- næring
- hreyfing
- vatnsdrykkja
- og streitustjórnun
Líkaminn þarf ekki alltaf næsta trend eða dýrustu lausnina. Oft hafa einföldu venjurnar mest áhrif til lengri tíma. Vertu allavega viss um að þú sért að rækta þær.
35 bætiefni á dag eða svo
Meira er ekki alltaf betra. Samfélagsmiðlar geta stundum látið manni líða eins og maður þurfi heilt apótek til að vera „heilsusamlegur“. En fyrir flesta skiptir meira máli að finna hvað virkar raunverulega fyrir líkamann.
Vel valin bætiefni geta að sjálfsögðu verið frábær viðbót, en þau eiga fyrst og fremst að styðja við heilbrigðan lífsstíl, en ekki vera notuð til að keyra áfram á orkuleysi, streitu og of miklu álagi.
Heilsuvenjur sem valda meira stressi
Ef morgunrútínan þín inniheldur ísbað, rauðljósameðferð, titringsbretti, öndunaræfingar, grænan drykk, 12 skrefa húðrútínu og hugleiðslu áður en klukkan verður 07:00...þá er kannski komin tími til að spyrja sig hvort heilsan sé farin að verða aðeins of mikið verkefni..ertu ekki sammála?
Heilsuvenjur eru til að bæta líðan okkar, ekki til að valda streitu og vera enn eitt verkefnið á ”to-do” listanum.
Kannski felst besta heilsutrendið ekki í því að gera meira, kaupa meira eða elta öll nýjustu trendin. Heldur að hlusta betur á líkamann og eigið innsæi, einfalda hlutina og finna þær venjur sem láta þér raunverulega líða betur og passa inn í þitt líf til lengri tíma.