Fara á efnissvæði

Hægðir geta gefið vísbendingu um heilsuna! 💩

Já, við erum að fara að tala um hægðir, eitthvað sem allir hafa, en fáir ræða! En sannleikurinn er sá að það er ótrúlegt hvað þú getur lært um heilsuna þína með því að kíkja aðeins á afraksturinn í klósettinu. Svo gríptu kaffibollann og köfum ofan í málið.
Bristol Nyasta

Lögun og áferð hægða

Hægðir koma í öllum stærðum og gerðum, en Bristol-skalinn er vísindalega viðurkenndur mælikvarði sem hjálpar okkur að skilja hvað er eðlilegt og hvað gæti verið ábending um meltingarvandamál. 

  1. Harðar, aðskildar kúlur (harðlífi)
    Merki um hægðatregðu, skort á trefjum eða of lítill vökvi. Hægðirnar eru of þurrar og hreyfast treglega, bætum við vökva og trefjum.
  2. Klessukenndar og kekkjóttar (mjúkar kúlur)
    Lítilsháttar hægðatregða. Meltingin er örlítið hægvirk, smá aukning á trefjum gæti komið ástandinu í lag.
  3. Lögulegar, harðar en með sprungum á yfirborðinu
    Nokkuð eðlilegt, en gæti bent til of lítillar vökvainntöku. Drekktu meira vatn og sjáðu hvort það lagast (skemmir ekki fyrir að setja smá sítrónu/lime í vatnið)
  4. Mjúkar, sléttar og sívalar (heilbrigðustu hægðirnar) 
    Fullkomnar hægðir. Jafnvægi milli trefja og vökva er til fyrirmyndar. Haltu þessu áfram.
  5. Mjúkar kúlur með sléttum jöðrum
    Hægðirnar eru að ferðast aðeins of hratt í gegnum meltingarveginn, gæti bent til vægs niðurgangs.
  6. Léttar, klessukenndar með ójöfnum jöðrum (linar hægðir)
    Merki um bólgur eða niðurgang. Getur tengst fæðuóþoli eða sýkingu. Gott að fylgjast með mataræðinu.
  7. Vatnskenndar, engin föst lögun, fljótandi (niðurgangur) 
    Alvarlegur niðurgangur, mikilvægt að drekka nóg af vökva og grípa til aðgerða ef þetta ástand varir í lengri tíma.
Í stuttu máli má segja að ef þú ert oftast á skalanum 1-2 eða 5-7, gæti verið ástæða til að skoða mataræði þitt og vökvainntöku betur. En ef þú ert í flokki 4, þá ertu með A+ í meltingu.

Hvað segir litur hægða um meltinguna?

Liturinn á hægðunum er ekki bara tilviljun, hann getur gefið mikilvægar vísbendingar um meltinguna og almenna heilsu. Hér er leiðarvísir að litum hægða og merkingu þeirra:

Brúnar hægðir (eðlilegar)
Allt í góðu! Þetta bendir til heilbrigðs meltingarferlis og eðlilegs gallflæðis. Haltu áfram á sömu braut.

Grænar hægðir
Geta stafað af því að matur fer of hratt í gegnum meltinguna, aukinni neyslu af salati (mjög grænum blöðum) eins og spínati eða öðrum breytingum í mataræði. Ekki panika nema þetta ástand standi í lengri tíma.

Svartar hægðir
Svartar hægðir geta stafað af járninntöku (sem er eðlilegt), mikilli neyslu á mjög dökkgrænu grænmeti (sem er eðlilegt) eða blæðingum í efri hluta meltingarvegar (sem er ekki eðlilegt).
Ef þú ert ekki að taka járn né borða mikið af dökkgrænu grænmeti og tekur eftir svörtum hægðum, er mælt með að hafa samband við lækni.

Ljósgráar eða hvíthúðaðar hægðir
Merki um gallskort, sem gæti tengst lifrar- eða gallblöðruvandamálum. Ef þetta gerist oft, skaltu leita til læknis.

Rauðleitar hægðir
Rauðrófur eða tómatar í matnum? Þá er þetta ekkert mál. En ef ekki er augljós skýring, getur þetta bent til blæðinga í neðri hluta meltingarvegar. Þá er best að láta lækni vita.

Gulbrúnar eða feitar hægðir
Merki um ófullkomna fitumeltingu, gæti tengst gall- eða brisvandamálum. Ef hægðirnar eru sífellt feitar eða illa lyktandi, er gott að skoða þetta nánar með sérfræðingi.
Flestir litir og lögun hægða eru saklaus fyrirbæri sem breytast með mataræði og lífsstíl. En stundum geta breytingar verið merki um undirliggjandi vandamál. Þumalputtareglan er sú að ef breyting á lit tengist mataræði þínu, þá lagast það venjulega fljótt. En ef óvenjulegur litur varir í nokkra daga án skýringar, þá er gott að hafa samband við lækni. 

Hafðu samband við lækni ef:

•    Óvenjulegur litur eða lögun varir í meira en nokkra daga.
•    Þú finnur fyrir verkjum, ógleði eða óútskýrðu þyngdartapi.
•    Blóð er sýnilegt í hægðum (rauðleitt eða svart).
•    Hægðir eru stöðugt mjög lausar eða feitar.

Slík einkenni geta tengst meltingarfærasjúkdómum eins og IBS, Crohn’s, sýkingum eða jafnvel næringarskorti. Ef þú ert í vafa, ekki hika við að ræða við lækni.
Hafðu meltinguna í góðu jafnvægi  því það sem fer inn, ræður miklu um það sem kemur út! 😊

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu