Líffræðingurinn Bruce Lipton, höfundur bókarinnar The Biology of Belief, hefur fjallað um hvernig umhverfi og lífsstíll geti haft áhrif á heilsu okkar umfram það sem genin ein og sér segja til um. Hugmyndir hans tengjast meðal annars sviði epigenetíkur, sem rannsakar hvernig ytri þættir geta haft áhrif á það hvernig genin tjá sig. Lipton heldur því fram að minna en 1% sjúkdóma séu alfarið erfðafræðilegir, á meðan yfir 90% eru afleiðing umhverfis, lífsstíls og hugsanamynstra.
Eitt af þekktustu dæmunum sem oft er vísað til í tengslum við epigenetík eru eineggja tvíburar sem ólust upp við ólíkar aðstæður. Þrátt fyrir að deila sama erfðamengi geta þeir þróað með sér ólíkar lífsvenjur og heilsufar eftir því hvernig lífsaðstæður þeirra mótast. Þetta sýnir vel að genin okkar eru ekki örlög okkar, heldur grunnur sem lífsstíll, umhverfi og reynsla hafa áhrif á.
"1% sjúkdóma eru alfarið erfðafræðilegir, á meðan yfir 90% eru afleiðing umhverfis, lífsstíls og hugsanamynstra”, - Bruce Lipton
Genin eru ljósrofarnir
Við höfum öll heyrt setningar eins og „krabbamein er í fjölskyldunni“ eða „ég er með hæg efnaskipti“, eins og erfðirnar ráði alfarið ferðinni og við höfum lítið um eigin heilsu að segja. En sannleikurinn er sá að genin virka eins og ljósrofar, þau eru þarna, en það er umhverfið sem ræður því hvort þau eru kveikt eða slökkt.
Ef þú hefur erfðafræðilega tilhneigingu til sykursýkis eða hjartasjúkdóma, þýðir það ekki að þú eigir örugglega eftir að fá þessa sjúkdóma. Það þýðir einfaldlega að þú ert með viðvörunarkerfi sem segir þér að lífsstílsákvarðanir geta skipt sköpum. Með réttum venjum getur þú mögulega haft áhrif og minnkað áhætturnar verulega.
Lífsstíllinn – stærsti áhrifavaldurinn
Rannsóknir sýna að ákveðnir lífsstílsþættir geta dregið verulega úr hættu á sjúkdómum, jafnvel þótt erfðirnar séu okkur ekki í hag. Þetta er í sjálfu sér ekkert nýtt, en stundum þurfum við að minna okkur á það sem við vitum nú þegar og umfram allt að nýta þá þekkingu í daglegu lífi.
- Hrein og næringarrík fæða hefur bein áhrif á hvernig genin okkar virkjast.
- Regluleg hreyfing hjálpar til við að viðhalda jafnvægi í líkamanum og getur komið í veg fyrir bólgur sem tengjast mörgum sjúkdómum.
- Líkaminn endurnýjar sig á nóttunni og lélegur svefn í lengri tíma getur ýtt undir genavirkni sem tengist sjúkdómum. Setum svefn í forgang.
- Langvarandi streita getur haft bein áhrif á genin okkar og getur þannig aukið hættu á sjúkdómum, eins og hjartasjúkdómum og geðrænum vandamálum.
Það sem þú gerir daglega skiptir meira máli en það sem er skráð í erfðamengi þitt.
Hlutverk undirmeðvitundarinnar í hegðun og heilsu
Margar af þeim venjum sem við höldum í fullorðinsár mótast í æsku. Ef við lærum að óheilbrigður matur eða sælgæti séu "verðlaun" eða að stress sé "eðlilegt", þá endurtökum við gjarnan þessi hegðunarmynstur sjálfkrafa.
Undirmeðvitundin stjórnar stórum hluta hugsana okkar og hegðunar án þess að við áttum okkur á því. Ef við viljum raunverulega hafa áhrif á heilsu okkar, þurfum við ekki bara að breyta mataræði og hreyfingu, heldur þurfum við líka að breyta hugsunum okkar og viðhorfi.
Ef við trúum því að við höfum stjórn á lífi okkar, byrjum við ósjálfrátt að haga okkur eins og það sé satt. Ef við trúum að við séum föst, tökum við ekki þær ákvarðanir sem geta leitt til breytinga.
Þetta er ástæðan fyrir því að fólk sem vinnur með sjálfsmynd sína, sjálfsörvun og jákvætt hugarfar nær betri árangri í heilsumálum, en þeir sem gefast upp, fara áfram á hnefunum, halda áfram lífinu í blindni eða kenna genunum um.
Þú hefur val
"Genin hlaða byssuna, lífsstíllinn skýtur" er ekki bara áhrifarík myndlíking, hún er staðreynd sem byggir á vísindum. Þó að erfðasamsetning okkar gefi okkur ákveðnar forsendur, höfum við alltaf vald til að hafa áhrif á útkomuna.
Hugur okkar, lífsstíll og ákvarðanirnar sem við tökum á hverjum degi hafa mun meiri áhrif en við gerum okkur oft grein fyrir. Ef þú vilt bæta líf þitt og heilsu, byrjaðu á einni venju í einu og mundu að þú hefur alltaf val. Misstígur þú þig, þá er bara að standa upp aftur - svo einfalt er það!