Fara á efnissvæði

Eru þægindi falin gildra?

Við veljum oftar en ekki auðveldari leiðina; lyftuna, rúllustigann, skyndibitann, sófann, skrollið. En hvað ef það sem sparar okkur orku í augnablikinu er í raun að ræna okkur orku, sjálfstrausti og vellíðan til framtíðar? Hverju erum við í raun að fórna fyrir „þægindin“?
VALIÐ ER ÞITT! (1)

Þegar við venjum okkur á að velja alltaf það einfaldasta, forðumst við ekki bara óþægindi, heldur minnkum við eigin getu til að þroskast og dafna. Í staðinn fyrir að styrkja huga og líkama með því að taka stigann eða elda næringarríkan mat, festumst við í vananum að forgangsraða skyndilausnum fram yfir raunverulegt langtímagildi. Þetta er eðlilegt í hraða og streitu nútímasamfélagsins, en á sama tíma skaðlegt fyrir okkur til lengri tíma. Hverju fórnum við í raun fyrir þessi ”þægindi”? Orkunni okkar? Heilbrigðinu? Sjálfsvirðingunni? Þegar við sleppum síendurtekið því sem krefst aðeins meira af okkur, erum við í raun að segja framtíðarútgáfunni af okkur sjálfum að hún skipti ekki máli.

Stundum er það sem sparar orku í augnablikinu einmitt það sem rænir okkur styrk og vellíðan til framtíðar.

Hvað rænir okkur orkunni?
Ef við höfum ekki orku til að sinna eigin vellíðan, er það skýr vísbending um að eitthvað dýpra sé í gangi. Erum við að vinna okkur í kaf? Lifum í stöðugri streitu? Finnst okkur við vera föst í vinnu, sambandi eða aðstæðum sem kæfa okkur í stað þess að hvetja okkur áfram? Stundum eru það skuldir, áhyggjur af börnunum okkar eða einfaldlega sú nagandi tilfinning að við séum ekki á réttum stað í lífinu. Þegar svona þættir tæma orkuna okkar, minnkar hæfnin til að taka skynsamar, meðvitaðar ákvarðanir sem styðja langtímamarkmið okkar. Því er svo mikilvægt að horfast í augu við staðreyndirnar og breyta leiknum.

Breyting byrjar með meðvitund
Í stað þess að breyta því fáa sem styrkir okkur, eins og að velja stigann eða borða hollari mat, þurfum við að beina athyglinni að því sem raunverulega rænir okkur orku. Hvað liggur að baki þessari sífelldu þreytu? Streita, álag, óuppfylltar þarfir? Þegar við köfum í rót vandans, frelsum við okkur frá vítahring skyndilausna og byrjum að skapa líf sem nærir okkur í stað þess að tæma.

Veldu stigann í lífinu - ekki alltaf lyftuna. Það kann að taka lengri tíma, en hverju skrefi fylgir styrkur, þrautseigja og sjálfstraust. Þegar þú velur meðvitað það sem styður þig, ertu ekki bara að leggja grunn að betri framtíð - þú ert að styrkja sjálfa/n þig hér og nú. Með hverju vali sem nærir þig, verðurðu sterkari, öruggari og meðvitaðri. Og þegar þú stendur stöðug/ur í eigin mætti, byrjar lífið sjálft að breytast í takt við það.

Svo, hvað velur þú, líf sem nærir þig eða líf sem smám saman tærir þig?

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu