Fara á efnissvæði

Er öflugasta hreinsikerfi líkama þíns stíflað?

Vissir þú að sogæðakerfið er tvisvar sinnum stærra en æðakerfi líkamans og eitt öflugasta hreinsikerfi líkamans? Við erum með 5-6 lítra af blóði í líkamanum en um 18 lítra af sogæðavökva. Við erum með hjarta sem pumpar blóðinu um æðar líkamans, en enga pumpu sem pumpar sogæðavökvanum um sogæðakerfið.
Sogæðakerfi

Af hverju skiptir sogæðakerfið máli?

Sogæðakerfið snertir öll kerfi líkamans – meltingu, taugakerfi, ónæmiskerfi og jafnvel andlega líðan. Þegar það flæðir vel ertu líklegri til að upplifa góða orku, skýra einbeitingu, jafna meltingu, og betri svefn.

En þegar það stíflast eða hægir á sér, þá birtast einkennin gjarnan sem bólgur, þreyta, þokusýn, meltingarvandamál, húðóhreinindi, hitasveiflur, slímmyndun og jafnvel tíð veikindi.

Sogæðakerfið er oft fyrsta kerfið til að kalla á hjálp þegar líkaminn er í ójafnvægi.

Blóðið er eldhús frumanna og sogæðakerfið er salernið

Sogæðakerfið salerni frumanna

Mikilvægt er að sogæðavökvinn flæði vel um sogæðakerfi líkamans. Þar sem sogæðakerfið hefur enga eigin pumpu til að dæla þessum vökva um líkamann er eðlilegt að velta því fyrir sér hvernig 18 lítrar af sogæðavökva ferðast um kerfið. Þegar flæðið er ekki gott geta lífseiginleikar vökvans breyst, hann getur þykknað, hreyfst hægar og safnast upp í sogæðum. Slíkt ástand getur leitt til ýmissa heilsufarsvandamála.

Allar frumur líkamans þurfa að fá næringu og losa sig við úrgang. Gott er að ímynda sér að blóðið sé eldhús líkamans, sem sér frumunum fyrir næringu, en sogæðakerfið sé salernið, sem fjarlægir úrgang og hreinsar til. Til að þetta „salerni“ virki sem skyldi þarf það aðstoð frá ýmsum líffærum sem sjá um að koma úrgangs- og eiturefnum út úr líkamanum, t.d. húðinni, nýrunum, lungunum og ristlinum.

Ef þessi líffæri starfa ekki sem skyldi, eru undir álagi eða að hluta til stífluð, þá er farið að þrengja að flæðinu. Úrgangsefni geta setið eftir í sogæðakerfinu og valdið uppsöfnun sem á endanum getur leitt til ýmissa ójafnvægis- eða heilsufarsvandamála. Bólur, blöðrur, separ og jafnvel æxlismyndun geta verið merki um slíkt ástand og ber að taka þau alvarlega sem skilaboð um að lífsstíllinn þurfi breytingar.

Óheilbrigður lífsstíll, kyrrseta, streita, álag og næringarsnautt mataræði, eru meðal þeirra þátta sem hafa hvað mest áhrif á starfsemi sogæðakerfisins og geta auðveldlega sett það úr jafnvægi.

Við erum með 5-6 lítra af blóði í líkamanum en um 18 lítra af sogæðavökva. Við erum með hjarta sem pumpar blóðinu um æðar líkamans en enga pumpu sem pumpar sogæðavökvanum um sogæðakerfið

Hreinsun sogæðakerfis

Þegar markmiðið er að hreinsa og styrkja sogæðakerfið er lykilatriði að styðja öll hin líffærin sem taka þátt í að losa úrgang og eiturefni úr líkamanum. Meltingarfærin, nýrun, húðin, lungun og lifrin þurfa öll að starfa vel svo úrgangurinn sem sogæðakerfið losar hafi frjálsa og greiða leið út úr líkamanum, í stað þess að endurupptakast eða safnast upp á ný.

Gott flæði í sogæðakerfinu byggir á reglulegum hægðum. Almenn viðmiðun er að losa hægðir að minnsta kosti einu sinni á dag, þar sem hægðatregða getur hægt á eðlilegu úrgangsflæði líkamans.

Sogæðakerfið liggur mjög grunnt undir húðinni, og þar sem húðin er stærsta líffæri líkamans gegnir hún mikilvægu hreinsunarhlutverki. Hún losar úrgangsefni út um svitakirtlana og því skiptir máli að hreyfa sig reglulega þannig að líkaminn fari að svitna og hitna. Það hjálpar sogæðakerfinu að halda áfram að flæða.

Nýrun eru eins konar síur líkamans og tilheyra þvagkerfinu. Þau hreinsa úrgangsefni með því að mynda þvag sem berst í gegnum þvagpípurnar og áfram til þvagblöðrunnar. Með þvaglátum losum við svo út úrgangsefni sem líkaminn vill losna við. Til að þetta kerfi virki vel er mikilvægt að drekka vel af hreinum vökva yfir daginn.

Ekki má heldur gleyma lungunum, sem eru stór þáttur í heilbrigðu blóði og öflugu sogæðaflæði. Með djúpum, rólegum andardrætti fær líkaminn aukið súrefni og því meira súrefni sem við fáum, því orkumeiri og líflegri verðum við. Djúp öndun hefur líka róandi áhrif á taugakerfið og getur dregið úr streitu, sem aftur styður allan hreinsunarferil líkamans.

Breytingar geta gert kraftaverk

Þó að sogæðakerfið hafi verið undir álagi lengi, jafnvel allt frá fæðingu, þýðir það ekki að skaðinn sé varanlegur eða að ekkert sé hægt að gera. Líkaminn er ótrúlega öflugur og hannaður til að leita jafnvægis á hverjum einasta degi. Þetta er eitt af mest heillandi undrum mannslíkamans - hann vill jafnvægi, hann leitast við jafnvægi og hann vinnur stöðugt að jafnvægi.

En það þýðir þó ekki að við getum farið illa með hann endalaust og búist við því að hann lagi allt jafnóðum. Óheilbrigður lífsstíll til lengri tíma, eins og kyrrseta, óreglulegt mataræði, langvarandi streita og álag, getur valdið uppsöfnun úrgangsefna, innri bólgum og ýmiskonar ójafnvægi sem smám saman setja sogæðakerfið úr skorðum. Og oft lagast slíkt ástand ekki fyrr en við breytum venjum okkar.

Stundum þarf stór skref til að ná breytingu. En í flestum tilvikum eru það litlu, stöðugu skrefin sem gera stærstu kraftaverkin. Smávægilegar lífsstílsbreytingar geta skilað ótrúlegum framförum í líðan, orku, meltingu, svefni og heildarstarfsemi sogæðakerfisins og líkaminn bregst hratt við þegar hann fær réttu aðstöðuna.

Sogæðakerfi 1

10 góð ráð fyrir sogæðakerfið

Hér að neðan eru 10 einföld og áhrifarík ráð sem geta styrkt sogæðakerfið ef þau eru notuð reglulega. Þú þarft alls ekki að fylgja þeim öllum í einu, það mikilvægasta er að velja ráð sem henta þínum lífsstíl og byrja smátt. Lífsstílsbreytingar taka tíma og því er skipulagning og þolinmæði lykilatriði. Ef þú dettur af sporinu endrum og eins skiptir mestu máli að halda áfram, alveg eins og ekkert hafi gerst. Litlar, stöðugar venjur leiða til áþreifanlegra breytinga.

 
1. Haltu sogæðavökvanum þunnum og flæðandi
Ein mikilvægasta leiðin til að styðja sogæðakerfið er að passa að sogæðavökvinn verði ekki þykkur eða slímkenndur. Drekktu vel af hreinu vatni, helst með smá sítrónu eða límónu sem virkar eins og náttúrulegur „uppþvottalögur“ fyrir kerfið. Nýkreistir safar og jurtate eru einnig mjög vökvandi.
Kaffi og sykurríkir drykkir hafa hins vegar þveröfug áhrif og geta þurrkað líkamann.

 
2. Veldu vökvaríkt og hreint fæði
Ferskt og næringarríkt fæði styður hreinsun sogæðakerfisins. Forðastu of saltríka eða mikið unna fæðu sem ýtir undir bólgumyndun. Borðaðu ávexti helst á tóman maga, þeir eru vatnsríkir, trefjaríkir og hjálpa líkamanum að hreinsa sig.

 
3. Hreyfðu þig á hverjum degi
Hreyfing er pumpan sem sogæðakerfið hefur ekki sjálft. Veldu hreyfingu sem fær þig til að anda hraðar, hitna og svitna. Hoppaðu á trampólíni, farðu í röskan göngutúr eða skokkaðu og teygðu vel á eftir á. Allt sem fær líkamann í gang hjálpar sogæðavökvanum að flæða.

 
4. Þurrburstaðu húðina
Þurrburstun fyrir sturtu losar húðina við dauðar húðfrumur og opnar hana fyrir betri hreinsun í gegnum svitakirtlana. Á sama tíma örvast blóðflæði og sogæðakerfið.

 
5. Notaðu heit-kalda sturtu
Skiptist á milli þess að hafa sturtuna heita (30–60 sek) og svo kalda (30–60 sek), tvisvar sinnum í röð. Hitanum fylgir víkkun æða og kuldanum samdráttur, saman virkar þetta eins og náttúrulegt nudd fyrir sogæðakerfið.
Forðastu þetta ef þú ert með hjartasjúkdóm eða háan blóðþrýsting.

 
6. Veldu létt nudd eða sogæðanudd
Sogæðanudd er mjúkt og áhrifaríkt nudd sem hjálpar líkamanum að losa út úrgang og styður hreinsunarkerfið. Djúpt nudd er gott fyrir vöðva en hefur ekki sömu áhrif á sogæðaflæði.

 
7. Borðaðu grænt grænmeti
Grænmeti sem er ríkt af chlorophyll styður bæði blóð og sogæðakerfi. Chlorophyll er efni sem líkist blóðsameindinni, eina sem skilur að er steinefnið í miðju sameindarinnar - járn í blóði en magnesíum í chlorophyll. Marga skortir magnesíum og geta því flestir haft ótrúlegan ávinning af því að borða meira grænmeti.

 
8. Notaðu cayenne pipar í litlu magni
Cayenne pipar eykur blóðflæði og hjálpar til við að leysa upp slím. Byrjaðu mjög smátt, hnífsoddur í vatnsglas tvisvar á dag í 10 daga getur verið nóg til að finna mun.
Sumir finna fyrir hitatilfinningu fyrstu dagana, sem er eðlilegt.

 
9. Jurtir sem styðja sogæðakerfið
Þari, fíflablöð og brenninetla eru jurtir sem hafa sérlega góð áhrif á sogæðakerfið. Villta indigo plantan (Baptisia tinctoria) er líka frábær til hreinsunar og hentar vel sem jurtate.

 
10. Forðastu of þröng föt
Mjög þröng föt geta dregið úr flæði sogæðakerfisins, sérstaklega í kringum mitti, mjaðmir og læri. Reyndu að forðast að vera í þröngum fötum daglega, gefðu líkamanum pláss til að anda og flæða.

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu