Við lifum hratt, borðum á ferðinni, svörum tölvupóstum á meðan við borðum, sofum aðeins of lítið og segjum okkur sjálfum að við gerum betur á morgun. Einn daginn byrjar líkaminn svo að senda skilaboð.
Við vöknum þreytt þrátt fyrir góðan nætursvefn, langar stöðugt í eitthvað sætt eftir mat, maginn er eitthvað að stríða okkur, orkan sveiflast yfir daginn og mögulega finnum við fyrir pirringi eða einbeitingarskorti. Þetta eru ekki endilega vandamál sem þarf að "laga", heldur eru þetta einfaldlega skilaboð - SEM ÞARF AÐ HLUSTA Á!
Líkaminn talar sitt eigið tungumál
Líkaminn sendir okkur stöðugt upplýsingar. Hungur segir okkur að við þurfum næringu, þreyta segir okkur að við þurfum hvíld og þorsti segir okkur að við þurfum vökva. Á sama hátt getur stöðug matarlöngun, orkuleysi eða meltingaróþægindi verið vísbending um að eitthvað í daglegu lífi okkar sé ekki alveg í jafnvægi - HLUSTAÐU Á SKILABOÐIN!
Ef ekkert breytist, breytist ekkert
Það er eitt að heyra skilaboðin og annað að bregðast við þeim. Ef við finnum fyrir einkennum en höldum áfram að sofa of lítið, hreyfa okkur of lítið, borða á sama hátt eða lifa við sama álag, er líklegt að líkaminn haldi áfram að senda okkur sömu skilaboðin og stundum verða þau háværari með tímanum.
Við getum ekki alltaf stjórnað því hvernig okkur líður, en við getum skoðað hvað í okkar daglega lífi gæti verið að hafa áhrif. Ef við breytum engu er erfitt að ætlast til þess að eitthvað breytist til batnaðar.
Góðu fréttirnar eru að breytingarnar þurfa ekki að vera stórar - ÞÆR ÞURFA BARA AÐ EIGA SÉR STAÐ.
Litlar breytingar skipta meira máli en að fara í átak.
Þegar við ákveðum að gera breytingar er auðvelt að halda að við þurfum að taka allt í gegn í einu. Róttækt mataræði, detox eða algjör endurræsing verður gjarnan fyrir valinu þegar oft er nóg að byrja á litlum, einföldum breytingum.
Breytingin gæti einfaldlega falist í því að:
- borða reglulega yfir daginn.
- bæta próteini í morgunmatinn.
- sofa hálftíma lengur.
- fara í 20 mínútna göngu úti.
- drekka meira vatn.
- gefa sér stund á hverjum degi fyrir eitthvað sem veitir gleði.
Þetta virðast kannski litlir hlutir, en það eru einmitt litlu hlutirnir sem við gerum reglulega sem geta haft mest áhrif til lengri tíma. Ein ganga eða einn góður nætursvefn breytir kannski ekki miklu, en þegar litlu skrefin verða að venjum fara áhrifin að safnast upp.
Það er því ekki endilega stærð breytinganna sem skiptir mestu máli, heldur að við höldum þeim áfram. Þetta snýst um litlu skrefin sem við framkvæmum aftur og aftur, dag frá degi - ÞAR LIGGUR KRAFTURINN!
Hvað væri ein breyting hjá þér?
Staldraðu aðeins við. Ef líkaminn þinn gæti sent þér skilaboð í dag, hvað myndi hann segja?
- Mig vantar meiri hvíld?
- Mig vantar betri næringu?
- Mig vantar minni streitu?
- Mig vantar meiri hreyfingu?
- Mig vantar meiri gleði í daglegt líf?
Svar líkamans er sjaldnast flókið. Við vitum það yfirleitt innst inni - HLUSTAÐU BARA OG FARÐU EFTIR INNRI RÖDD!
Líkaminn vinnur alltaf með þér
Það er auðvelt að líta á einkenni sem óvin, en oft eru þau einfaldlega leið líkamans til að ná athygli okkar. Markmiðið á ekki að vera fullkomnun, heldur að hlusta aðeins betur og bregðast við því sem líkaminn er að segja okkur. Því þegar við gefum líkamanum það sem hann þarf, svarar hann oft með meiri orku, betri líðan og meira jafnvægi - PRÓFAÐU!