Algeng einkenni járnskorts eru:
• Þreyta og orkuleysi
• Heilaþoka og einbeitingarskortur
• Svimi eða höfuðverkir
• Andþyngsli við áreynslu
• Hármissir
• Kuldatilfinning í höndum og fótum
Konur á barneignaraldri eru í aukinni áhættu vegna blæðinga, en járnskortur getur einnig tengst meðgöngu, einhæfu mataræði, mikilli hreyfingu eða skertri upptöku úr meltingarvegi.
Ef þú hefur verið þreytt/ur í langan tíma án skýrrar ástæðu gæti verið þess virði að skoða hvort járnskortur sé hluti af skýringunni.
Það sem margir vita ekki er að hægt er að vera með lágar járnbirgðir án þess að vera kominn með blóðleysi. Þess vegna getur verið gagnlegt að láta mæla ferritín, sem gefur vísbendingu um járnbirgðir líkamans.
Ef þú hefur verið þreytt/ur í langan tíma án skýrrar ástæðu gæti verið þess virði að skoða hvort járnskortur sé hluti af skýringunni. Stundum er það ekki streitan, aldurinn eða annríkið sem er að draga úr orkunni, heldur einfaldlega skortur á járni.
Þó ferritín sé oft talið eðlilegt yfir 15–20 µg/L benda margar rannsóknir og klínísk reynsla til þess að sumir finni fyrir einkennum járnskorts þegar gildin eru undir 30–50 µg/L. Einnig hefur verið bent á að lágar járnbirgðir geti tengst auknu hárlosi hjá sumum einstaklingum og að sumir upplifi ekki bata fyrr en ferritíngildi eru komin talsvert hærra. Margir sérfræðingar telja að ferritín á bilinu 50–100 µg/L geti verið æskilegt fyrir góða orku og almenna líðan, þó mikilvægt sé að meta niðurstöður alltaf í samhengi við einkenni og aðrar blóðrannsóknir.