Fara á efnissvæði
FAGNAÐU BREYTINGUM (2)

Femarelle

Femarelle® er fæðubótarefni ætlað fyrir konur sem eru að byrja á breytingaskeiði. Því er ætlað að slá á einkenni tíðahvarfa sem stafa af minnkandi magni estrógens í líkamanum þegar tíðarhvörf nálgast.

Femarelle® er byggð á rannsóknum leiðandi kvensjúkdómalækna og vísindamanna um allan heim. Þeirra ásetningur er að finna náttúrulega lausn á einkennum breytingaskeiðs fyrir konur. Femarelle er örugg og árangursrík gegn einkennum breytingaskeiðs án notkunar hormóna.
441961393 987296896730473 4208626262133943859 N

Femarelle sem fyrsta meðferð

Breytingaskeiðið hefst þegar eggjastokkar konunnar draga úr framleiðslu á kven­hormónum. Þetta hefst oftast þegar konur eru á bilinu 40-52 ára, en þó eru mörg dæmi þess að þetta ferli byrji fyrr og jafnvel síðar. 

Prófessor Andrea Genazzani, for­seti Evrópuráðs í kvensjúkdóma­fræðum mælir með Femarelle sem fyrstu meðferð við einkennum breytingaskeiðs en það hefur færst gríðalega í aukana að konum sé bent á náttúrulegar leiðir frekar en taka inn hormóna. Það sem gerir Femarelle sérstakt er efnasamband, unnið úr óerfða­breyttu soya, sem kallast DT56a og viðurkenndar rannsóknir sýna að það örvar estrógennema í stað­bundnum vef, slær á einkenni tíðahvarfa og styrkir bein, án þess að hafa nokkur neikvæð áhrif á vef í móðurlífi eða brjóstum. Virkni Femarelle hefur verið staðfest með fjölda rannsókna.

FAGNAÐU BREYTINGUM 40+

Lífið er til þess að njóta

Upp úr fertugu fækkar eggjum í eggjastokkum flestra kvenna. Egglos á sér því stað sjaldnar. Þar sem egglos losar um mikið magn estrógens minnkar estrógenmagnið í líkamanum smátt og smátt, þar til slímhúð legsins hættir að þykkna sem leiðir til þess að blæðingar hætta og tíðarhvörfin hefjast.

Rannsóknir á Femarelle® sýna að efnið getur aukið almenna vellíðan, slegið á hitakóf, viðhaldið orku og minnkað skap­sveiflur, jafnvel á fyrsta mánuði notkunar. Femarelle® er fáanlegt í þremur gerðum fyrir ólík aldursskeið og stig breytingaskeiðsins. Kynntu þér nánar hvaða vara hentar þér.

Kynntu þér Femarelle vörurnar

104-14010037.jpg Breytingaskeiðið Femarelle Rejuvenate Femarelle® Rejuvenate er sérhannað bætiefni fyrir konur sem eru að uppl...
Vara til á lager
Verð 4.298 kr
Error
680-14010015.jpg Breytingaskeiðið Femarelle Recharge Femarelle Recharge er fyrir konur á aldrinum 50+. Femarelle Recharge er...
Vara til á lager
Verð 4.298 kr
Error
1

Femarelle Rejuvenate 40+

Skapsveiflur, húðvandamál og þreyta.

Inniheldur einkaleyfisvarið efnasamband, DT56a sem slær á einkennin, hörfræ sem stuðla að meira hormónajafnvægi, B2 og B7 vítamín fyrir eðlileg efnaskipti, aukna orku og viðhald húðar, slímhúðar og hárs.

Hentar konum á fyrstu stigum breytingaskeiðs. Alveg frá 30 ára aldri geta konur farið að finna fyrir ákveðnum einkennum sem tengjast breytingarskeiðinu.

Helsta innihaldsefni Rejuvenate, DT56a, virkar þannig að það örvar estrógennema í staðbundnum vef, ásamt því að efnið hefur það að markmiði að slá á einkenni tíðahvarfa án þess að hafa nokkur neikvæð áhrif á vef í móðurlífi eða brjóstum.

2

Femarelle Recharge 50+

Femarelle Recharge styður við eðlilega hormónastarfsemi og er náttúruleg lausn fyrir konur sem komnar eru á breytingarskeiðið og hafa óreglulegar blæðingar eða eru alveg hættar.

Inniheldur einkaleyfisvarið efnasamband, DT56a sem slær á einkenni breytingaskeiðsins, hörfræ sem stuðla að meira hormónajafnvægi og B6 vítamín en rannsóknir hafa sýnt að það getur magnað áhrif áðurtaldra innihaldsefna, aukið orku og dregið úr þreytu og sleni.

Helsta innihaldsefni Recharge, DT56a, virkar þannig að það örvar estrógennema í staðbundnum vef, ásamt því að efnið hefur það að markmiði að slá á einkenni tíðahvarfa, án þess að hafa nokkur neikvæð áhrif á vef í móðurlífi eða brjóstum.

Hentar konum sem ekki hafa haft blæðingar í einhvern tíma.

Fagnaðu Breytingum 60+ Story

Femarelle Unstoppable 60+

Femarelle® Unstoppable eykur beinþéttni og viðheldur heilbrigði beina og hentar konum sem komnar eru af breytingaskeiði eða þegar einkenni hætta.

DT56a stuðlar að hormónajafnvægi, eykur beinþéttni og einnig minnkar það leggangaþurrk. B2 og B7 vítamín fyrir eðlileg efnaskipti, aukna orku og viðhald húðar, slímhúðar og hárs. Kalk og D vítamín eru svo nauðsynleg til að viðhalda styrk beina.

Algengar spurningar

Fræðslumoli: Svefnleysi er oft fyrsta merki um upphaf breytingaskeiðs

Svefnvandamál er oft á tíðum fyrsta vísbending um að breytingaskeið kvenna sé að hefjast en 40-60% upplifa einhvers konar svefnleysi á breytingaskeiðinu.

Svefn er flókið og margslungið fyrirbæri en svefn er á sama tíma lykillinn að góðri líkamlegri og andlegri heilsu. Góður svefn gefur líkamanum tækifæri til að hvílast og endurnærast sem styrkir ónæmiskerfi okkar og stuðlar að góðri heilsu. Svefn hefur að auki margvísleg áhrif á virkni heilans og öll fjögur svefnstigin hafa sínu hlutverki að gegna, almenn heilsa verður betri ef við sofum vel og erum við reiðubúnari til að takast á verkefni dagsins.

Fullkomlega eðlilegur tími í lífi kvenna

Breytingaskeiðið er eðlilegur hluti af lífi kvenna og eitthvað sem allar konur ganga í gegnum, en hins vegar einstaklingsbundið hvernig konur upplifa tilteknar breytingar. Sumar konur upplifa ákveðið frelsi og fagna þessum tímamótum á meðan aðrar kvíða fyrir þessum breytingum og þeim líkamlegu og andlegu einkennum sem geta fylgt í kjölfarið. Einkenni breytingaskeiðsins eru mismunandi og ótrúlega lúmskt, óútskýrð þyngdaraukning og depurð eru dæmi um einkenni en 9 af hverjum 10 konum finna fyrir andlegri vanlíðan á breytingaskeiðinu. Ef grunur er um að breytingaskeiðið sé að hefjast er mikilvægt að muna að það eru til ráð sem geta hjálpað þér að endurheimta sjálfa þig og það er þess virði að kynna sér, en mundu þó að þú ert ekki ein.

Mynd Fyrir Feed Svefn 1024X1022

Svitakóf, nætursviti, þreyta?

Á breytingaskeiðinu getur líkaminn gengið í gegnum miklar breytingar sem geta haft mismunandi áhrif á líðan og heilsu. Einkenni þeirra hormónabreytinga sem eiga sér stað á breytingaskeiðinu geta verið afar mismunandi milli kvenna en svefntruflanir eru eitt aðal einkenni þess. Um 40-60% kvenna á breytingaskeiðinu upplifa hvers konar truflanir á svefni, svitakóf, nætursviti, þreyta og syfja á daginn eru einkenni sem flestar konur kannast við á þessu skeiði. Svefn getur því tekið töluverðum breytingum á breytingaskeiðinu og er því mikilvægt að huga að lausnum sem geta hjálpað. Meðal annars er mikilvægt að taka því rólega tveimur tímum fyrir svefn, lágmarka alla notkun rafmagnstækja, ekki neyta koffíns eftir klukkan 14:00 á daginn og stunda reglulega hreyfingu. Náttúruleg bætiefni hafa að auki reynst gríðar mörgum vel en Femarelle er oft talin fyrsta lausn gegn einkennum breytingaskeiðs og er ekki úr vegi að skoða kosti þess sem geta hafa jákvæð áhrif á svefn og líðan.

Einstök viðbót á breytingaskeiðinu

Fjölmargir kvensjúkdómalæknar í Evrópu mæla með Femarelle vörulínunni sem fyrstu meðferð við breytingaskeiðinu þar sem Femarelle er hormónalaus lausn við einkennum. Vörulínan inniheldur 3 vörur svo allar konur ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Helsta innihaldsefni í vörulínu Femarelle er einkaleyfisvarið efnasamband, DT56a, sem virkar þannig að það örvar estrógen-nema í staðbundnum vef, ásamt því að efnið slær á einkenni tíðahvarfa án þess að hafa nokkur neikvæð áhrif á vef í móðurlífi eða brjóstum. Femarelle Rejuvenate hentar konum sem eru að upplifa fyrstu einkenni hormónabreytinga og áður en óregla kemst á blæðingar. Blandan inniheldur hörfræ, B2- og B7-vítamín sem stuðlar að eðlilegum efnaskiptum ásamt viðhaldi eðlilegrar húðar, slímhúðar og hárs. Femarelle Recharge er fæðubótarefni fyrir konur sem eru komnar á breytingaskeiðið, hafa óreglulegar blæðingar eða eru alveg hættar á blæðingum. Varan inniheldur B6-vítamín sem stuðlar að því að halda reglu á hormónastarfsemi og dregur úr þreytu og lúa. Síðast en ekki síst er Femarelle Unstoppable sem er fæðubótarefni fyrir konur sem komnar eru af breytingaskeiðinu eða þegar einkenni hætta. Blandan inniheldur B2- og B7-vítamín, kalk og D-vítamín sem stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina. Femarelle vörulínan er afar hentug fyrir konur sem eru að ganga í gegnum þetta margbreytilega skeið og geta allar fundið eitthvað við sitt hæfi.

Höfundur greinar: Ásdís Birta

5
0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu