Fara á efnissvæði
396240763 672677198289991 4848191013385618999 N

Bio-Kult

Góðgerlarnir frá Bio-Kult eru frábær viðbót inn í daglega rútínu en gerlarnir hafa ýmis heilsueflandi áhrif á líkamann með því að efla meltingu og frásog næringarefna. Það er ekki að ástæðulausu að kalla má Bio-Kult sérfræðinga í góðgerlum.
Skjámynd 2025 09 24 170424

Sérfræðingar í góðgerlum

Í líkama okkar fyrirfinnast milljarðar af bakteríum og örverum sem í daglegu tali eru nefndar þarmaflóra. Þær sem eru okkur vinveittar spila mikilvægt hlutverk þegar kemur að vörnum líkamans, hvort sem um er að ræða skilvirka meltingu eða öflugt ónæmiskerfi.

Fjölmargar rannsóknir eru til sem hafa sýnt fram á kosti þess að taka inn Bio-Kult gegn hinum ýmsu kvillum. Til dæmis hefur verið hægt að draga úr einkennum barnaexems, laga hægðir hvort sem um harðlífi eða niðurgang er að ræða, minnka ristilkrampa og bæta lifrarstarfsemi sjúklinga með (non-Alcoholic) fitulifur. Bio-Kult vörurnar hafa verið framleiddar með tilliti til þessara einkenna m.a. og hefur hver vara sitt sérkenni.

Skjámynd 2025 09 24 170853

Okkar Markmið

ADM Protexin – framleiðandi Bio-Kult leggja ríka áherslu á að framleiða nýstárlegar vörur í hæsta gæðaflokki – byggðar á vísindalegum rannsóknum. Framúrskarandi reynsla þeirra af framleiðslu á vörum úr lifandi örverum í meira en 25 ár ásamt sterkri gæðastýringu og vottun setur þá í fremstu röð.

Það skiptir þá öllu máli að hafa öflugt gæðaeftirlit og er það útfært og viðhaldið af þeirra eigin teymi, stutt af örverufræðingi fyrirtækisins og óháðum ISO 17025: 2005 viðurkenndum örverufræðilegum og greiningarrannsóknarstofum.  Þar eru framkvæmdar greiningar á hráefni þeirra sem og fullunnum vörum. Greiningarvottorð eru unnin fyrir hverja vöruframleiðslu og eru fáanleg ef óskað er eftir þeim.

Skjámynd 2025 09 23 121242

Örveruflóran

Þarmaflóran samanstendur af meira en 1000 tegundum örvera sem vega hátt í 2 kíló.  Hún gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki þegar kemur að heilsufari okkar, hvort sem um er að ræða líkamlega eða andlega heilsu.

Þegar þarmaflóran (örveruflóran) í meltingarveginum verður fyrir hnjaski og það kemst ójafnvægi þar á, koma fram óþægindi sem geta verið af ýmsum toga.  Þetta er t.d. :

  • Uppþemba
  • Brjóstsviði
  • Harðlífi/niðurgangur
  • Sveppasýkingar
  • Blöðrubólga
  • Ristilkrampar
  • Iðraólga (IBS)

Það er ýmislegt sem getur valdið ójafnvægi á þarmaflórunni þannig að við finnum fyrir fyrir því. Slæmt mataræði hefur mikil áhrif og eins og alltaf þá eru unnin matvæli og sykur þar fremst í flokki. Lyf eins og sýklalyf, sýrubindandi lyf og gigtarlyf eru slæm fyrir þarmaflóruna og svo getur streita einnig haft alvarlegar afleiðingar í þörmunum, eins og víða annarsstaðar í líkamanum.

Veist þú af hverju við ættum að taka góðgerla?

Góðgerlar bæta meltingarferlið með því að örva hreyfingu í meltingarveginum sem leiðir til betri meltingar! Einnig aðstoða þeir við niðurbrot, upptöku og nýtingu næringar úr fæðunni í vöðvabyggingu, viðgerð og endurheimt. 

Mikilvægt er að huga að góðri þarmaflóru og eru góðgerlar einstaklega mikilvægir fyrir okkur öll.

Ekki láta góða gerla vanta í þitt líf!

Skjámynd 2025 09 26 111023

Góðgerlar fyrir alla

290-Everyday_Gut_60 v2_FRONT.jpg (1) Vítamín Bio Kult Everyday Góðgerlar Er meltingin í lagi? Bio Kult Everyday er sérhönnuð góðgerlablanda fyri...
Vara til á lager
Verð 3.198 kr
Error
313-Candea_60.png (1) Vítamín Bio Kult Candéa Góðgerlar Verndaðu þig og þína þarma
Vara til á lager
Verð 3.198 kr
Error
405-ProCyan_60.png (1) Vítamín Bio Kult Pro-Cyan Góðgerlar Léttu blöðrunni lífið
Vara til á lager
Verð 3.198 kr
Error
185-Migréa.png (1) Vítamín Bio Kult Migrea Góðgerlar Léttu á kollinum með gógerlablöndunni Bio Kult Migréa
Vara til á lager
Verð 3.498 kr
Error
156-Mind-60.png (1) Vítamín Bio Kult Mind Góðgerlar Skortir þig einbeitingu?
Vara til á lager
Verð 3.189 kr
Error
Skjámynd 2025 09 24 151741
0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu