Lansinoh Lanolin brjóstakrem 10 ml
Lansinoh HPA Lanolin brjóstaáburðurinn hefur bjargað geirvörtum um allan heim í næstum 40 ár. Lanolinið hjálpar til við að verja og róa sárar og sprungnar geirvörtur. Það gefur húðinni raka, verndar og nærir hana. Einstakt hreinsunarferli tryggir hreinleika. Lanólínið í fjólubláu túpunni er 100% náttúrulegt og án allra rotvarnarefna og annarra aukaefna. Einnig er það vottað af bresku ofnæmissamtökunum og prófað af húðlæknum. Ekkert bragð, enginn litur og engin ilmefni. Það er því óhætt að hafa barnið á brjósti án þess að þurfa fjarlægja kremið. Einnig er hægt að nota áburðinn á bleyjuútbrot, slit, lítil sár, bruna, nuddsár, þurra bletti og sem náttúrulegan rakagefandi varasalva. Til í þremur stærðum, 40 ml, 10 ml og þrír 7 ml í pakka.
Tengdar vörur


