Medela Solo þráðlaus brjóstadæla einföld
Medela Solo er fyrirferðalítil, áhrifarík og auðveld í notkun. Með endurhlaðanlegu innbyggðu batteríi og Personalfit flex brjóstaskjöldum sem aðlagast að brjósti móður og er hægt að snúa í 360° hring sem auðveldar móður að mjólka sig hvort sem hún liggur eða situr. Brjóstadælan er með tveggja fasa tækni sem líkir eftir náttúrulegum sogkrafti barns og tryggir það að þú getir dælt brjóstamjólk á þægilegan og skilvirkan hátt án þess að valda óþægindum á viðkvæmum brjóstvef. Auðveld í notkun. Auðvelt að taka í sundur og þrífa. Þráðlaus og létt. Með bættri hreyfigetu – innbyggt endurhlaðanlegt batterí sem dugar í 6 skipti. Stuttur hleðslutími með USB snúru Tveggja fasa tækni sem líkir eftir náttúrulegum sogkrafti barns. Personalfit Flex brjóstaskjöldur sem eykur þægindi og þú getur pumpað allt að 11,8% meiri mjólk. Hljóðlát. Með lekavörn sem kemur í veg fyrir að brjóstamjólk leki í slöngurnar. Það sem fylgir með: 1x Solo motor, 1x 150ml peli með loki, 1x pelastandur, 1 Personal fit Flex connector, 1 personalfit flex brjóstaskjöldur 24 mm, 1 USB snúra, straumbreytir og notkunarleiðbeiningar.
Tengdar vörur


