Better You Magnesíum Muscle flögur 1 kg.
-
Góð áhrif á endurheimt
-
Sérstaklega fyrir íþróttafólk
-
Óhætt fyrir barnshafandi konur, konur með brn á brjósti og börn frá þriggja mánaða aldri.
-
Hentar einnig í heitapottinn
Magnesíum er eitt af mikilvægustu steinefnum líkamans og er m.a. nauðsynlegt fyrir eðlilega starfsemi hjarta, vöðva og taugakerfis. Magnesíum hefur góð áhrif á endurheimt vöðva eftir álag. Líkaminn getur tekið upp magnesíum í gegnum húðina og því er tilvalið að fylla á magnesíum birgðirnar með því að bæta magnesíum út í baðið eða heita pottinn til að endurnæra líkamann eftir erfiðan dag. Magnesíum flögurnar leysast upp í vatni og eru einstaklega slakandi og róandi fyrir líkama og sál. Einnig er tilvalið að blanda flögunum í fótabað sem getur verið áhrifaríkt gegn fótapirring og þreytu í fótum. Magnesíum flögurnar eru hreinasta form af magnesíum sem hægt er að fá. Magnesíum Muscle inniheldur magnesíum klóríð, sítrónu og rósmarín fyrir djúpa slökun og endurheimt vöðva eftir erfiðar æfingar og átök. Engin skaðleg aukaefni. Óhætt fyrir barnshafandi konur, konur með barn á brjósti og börn frá þriggja mánaða aldri.
Fótabað: Blandið um 150 gr. í hentugt fat, bala eða í baðið og setjið fætur í 20 mínútur eða lengur. Fótabaðið er sérlega hentugt fyrir þreytta og þrútna fætur og ef fólk þjáist af fótakrampa, bjúg, sinadrátt eða fótaóeirð eru magnesíum flögurnar góður kostur til að flýta fyrir endurheimt.
Bað: Blandið um 250 – 500 gr. í baðkar og baðið ykkur í 20 himneskar mínútur eða lengur eftir þörfum. Magnesíum baðmeðferð er einkum hentug gegn krampa og þreytu í vöðvum. Ef þú ert með auma og/eða stirða liði er einstaklega gott að fara í magnesíum bað eftir langar og strangar æfingar til að flýta vöðvabata og endurheimt.
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.
Tengdar vörur



